23.12.2011 | 23:41
Þessi ungi palestínumaður fann lausn, ekki reiður lengur.
Það virðist hins vegar ekki hægt að segja það um þessa herramenn:
"Markmið fundarinn er aðeins eitt: að setja af stað ferli til þess að binda enda á þann klofning sem ríkir á meðal Palestínumanna," sagði al-Ahmed.
Að sögn Izzat al-Rishq, hátt setts fulltrúa í sendinefnd Hamas, er vonin sú að báðar fylkingar nái sáttum um að sleppa lausum þeim pólitísku föngum sem eru í haldi beggja fylkinga. "
Sannur friður byrjar í hjarta sérhvers manns. það er bæn mín að þessir herramenn megi einnig finna hinn sanna frið. Og það er einnig bæn mín fyrir Ísrael, að þeir megi meðtaka þann sem þeir höfnuðu.
Hreyfingar Palestínumanna funda í Kaíró | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 24.12.2011 kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2011 | 23:06
Sonur Hamas
Hér er stutt viðtal við höfund bókarinnar " Sonur Hamas" Mosab Hassan Yousef.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2011 | 20:52
Er líklegt að Össur komi á friði fyrir botni miðjarðarhafs ?
Merkileg þykir mér sú stefna sem þessi vinstri stjórn hefur mótað í málefnum Palestínu.
Að vísu hafði forveri Össurar Ingibjörg öðlast breytta sýn, þegar hún heimsótti bæði Ísrael og Gasa.
Þá uppgötvaði hún að það voru tveir aðilar sem áttu í deilu, en ekki bara hinn vondi Ísrael að kvelja lítilmagnann. En þannig hljómar fréttaflutningur oftast á Íslandi. Ég hef ekki heyrt eða séð í fréttum hér, að 10 flugskeytum var skotið frá Gasa inn í Ísrael um síðustu helgi.
En nýlega kom út bók, sem tekur á kjarna þessara deilumála, skrifuð af syni eins þeirra sem stofnuðu Hamas samtökin árið 1986. Þar lýsir þessi ungi maður báðum hliðum og segir frá æsku sinni, þar sem hann kastar grjóti að ísraelskum hervélum, frá dvöl sinni í ísraelsku fangelsi, dregur upp mynd af " friðarverðlaunahafanum og hryðjuverkamanninum Yasser Arafat" , sem hann lýsir sem athyglissjúkum, slægum og gjörspilltum manni.
Ennfremur segir þessi ungi maður frá því hvernig hann hætti að trúa á þau lífsgildi sem hann hafði alist upp við.
Ég held að þessi bók, sé góð fyrir alla, hvað skoðun sem þeir hafa á málefnum miðausturlanda.
Láttu ekki fordóma stöðva þig í að lesa þessa bók.
Mjög spennandi bók, sem fæst í flestum bókaverslunum.
Ræddu leiðir til að endurvekja friðarferlið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.7.2011 | 17:00
Mannréttindi á Íslandi ??
Í þessarri frétt telur ráðherrann okkar að flóttamenn fái réttláta meðferð í Noregi. En því miður er því ekki svo farið. Fólk myndi ekki flýja frá Noregi ef það fengi réttláta meðferð. Nýlega var innflytjendalögum breytt í Noregi. Fólk sem var búið að koma sér fyrir vera þar jafnvel 12 ár í vinnu og búið að eignast heimili lenti aftur á byrjunarreit.
Utanríkisráðherrann okkar hefur farið mikinn undanfarið og talað um mannréttindabrot Ísraelsmanna. En hvað gerum við íslendingar við fólk sem er að reyna bjarga lífi sínu og kemur hingað til lands. Jú, við bjóðum það velkomið með 30 daga fangelsi. Ég tel að minn kæri Össur mætti rifja upp söguna, sem hann lærði í Hliðardalsskóla forðum, " um bjálkann og flísina.
Nýlega komu hingað til lands 3 Eþíópu menn, fólk með menntun, kristið og þráir ekkert heitar en að búa í sínu heimalandi. Þau höfðu dvalið 4-5 ár í Noregi, og þar var þeim synjað um dvalarleyfi og átti að senda þau til baka til Eþíópíu. Þau tóku til sinna ráða og fengu sér vegabréf, og freistuðu þess að komast til Kanada, þar sem þau segja að menn hafi skilning á málefnum Eþíopíu. En eins og svo margir aðrir þá voru þau stöðvuð í Leifstöð, þar sem þau þurftu að millilenda.
Fengu að dúsa í hegningarhúsinu á Skólavöðustíg í 15 daga, fengu styttingu á dómi sínum, sennilega vegna þrengsla í íslenskum fangelsum. En hjartanlega velkomin til Íslands samt. Nú, þau áttu ekki annars úrkosta en biðja um hæli hér á landi, þótt það væri kannski ekki það sem þau vildu.
Nú eftir u.þ.b. mánuð þá fengu þau bréf frá úlendinga stofnun, þar sem þeim er tjáð að þeirra mál verði ekki tekið fyrir á Íslandi, þau verði send til Noregs.
Og það þýðir í raun að þau verða send til Eþíópíu, þar sem þeirra bíður fangelsi og pyntingar. Af hverju ? Jú þau deila ekki sömu pólitísku skoðun og forseti landsins.
Fyrir þá sem ekki vita, að eftir kosningar í Eþíópíu 1995, þá gerðust svipaðir atburðir og eru að gerast í Sýrlandi núna. Pólitískir andstæðingar voru miskunnarlaust drepnir, fangelsaðir og pyntaðir.
Frjálsir fjölmiðlar eru að mestu bannaðir og fjölmiðlamenn hafa mátt dúsa í fangelsum aftur og aftur.
Ég spyr, ef við íslendingar teljum oss þess umkoma að skipta okkur að málum annarra þjóða, hvernig væri að líta í eigin barm.
Þessir Eþíópíumenn hafa komið á samkomur hjá okkur í Hvítasunnukirkjunni í Keflavík og ég verð að segja að þetta fólk er örvæntingarfullt. Það óttast um líf sitt. Ég skora á ríkisstjórn Íslands að virða þau sjálfsögðu mannréttindi að hjálpa fólki sem berst fyrir lífi sínu.
Ég vil taka fram að margir hafa fengið góða og réttláta meðferð á Íslandi, en að bjóða fólk velkomið með fangelsisvist er ómannúðlegt.
Set inn slóð hér sem lýsir ástandinu í Eþíópíu:https://docs.google.com/viewer?a=v&pid=gmail&attid=0.2&thid=13130d1cb4320aa4&mt=application/pdf&url=https://mail.google.com/mail/?ui%3D2%26ik%3D82ecab8453%26view%3Datt%26th%3D13130d1cb4320aa4%26attid%3D0.2%26disp%3Dsafe%26zw&sig=AHIEtbQyWCH3N9tXWmwDBHyvcmKD9V3z3A
Á að fá úrlausn í Noregi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.12.2010 | 08:50
Leita leiða til að kasta evrunni
Nú er um að gera fyrir Jóhönnu og Steingrím að standa klár á því og grípa .....
Það er sorglegt að þjóð okkar skuli kosta kapps um og eyða milljörðum í að fá að taka þátt í hruni E.S.B. Var ekki nóg að upplifa okkar eigið hrun.
Evran byrði á Slóvökum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2010 | 21:09
Að gefa með réttu hugarfari.
Á þessum tíma eru margir uppteknir af því hvað eigi að gefa, og enn aðrir velta því fyrir sér hvað sé í pakkanum þeirra.En svona til hugleiðingar eru hér tvær sögur sem segja okkur að það skiptir líka máli hugarfarið á bak við gjöfina.
Saga 1 : Árið 1977 voru hjón sem ákváðu að gefa 3 milljónir dollara til að reisa nýjan dýragarð fyrir börn í Central Park NY. En fljótlega kom upp vandamál vegna þess að skiltið sem sagði hverjir gefendur væru var ekki nógu stórt. Einnig var það vandamál að einhverjir sem höfðu gefið til þessa málefnis 30 árum áður , þeirra skilti var stærra. Það kom upp tillaga að skipta út nöfnum fyrri gefenda fyrir þá síðari, en þegar stjórn dýragarðsins kom saman þá hafnaði hún þeirri hugmynd. Það sem gerðist næst var að hjónin drógu gjöf sína til baka.
Saga 2. Charles Spurgeon og kona hans seldu alltaf eggin frá hænum sínum. Jafnvel nánustu ættingjar þurftu að borga. Vegna þessa, þá var sagt um þau, að þau væru ágjörn.
Það var ekki fyrr en eftir að kona Spurgeon lést að allur sannleikurinn kom í ljós. Allur ágóði af eggjasölunni rann til tveggja fátækra ekkna. Það var greinilegt að Spurgeon hjónunum fannst meira til þess koma hvernig Guð leit á þeirra gjöf , heldur en menn. Matt. 6.1
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jólBloggar | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2010 | 21:49
Getur verið að skaparinn setji okkur í réttan líkama eftir allt saman ?
Athyglisverð frétt í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað. Það hefur alltaf verið mín sannfæring að það besta sé að vera bara eins og maður er af Guði gerður.
Einhver sagði, ef við gerum núna það sem er erfitt, þá verður lífið létt. En ef við gerum núna það sem er létt, þá verður lífið erfitt.
Ekki ætla ég að gera lítið úr þeirri baráttu sem þeir einstaklingar eiga í sem eru óánægðir með kyn sitt, en það sem virðist heillandi og fýsilegt er ekki endilega það sem skapar lífsfyllingu og hamingju til frambúðar.
Skipti tvisvar um kyn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
11.11.2010 | 11:37
Er löggjafinn að hygla lögleysinu ?
Ekki árás á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.7.2010 | 22:30
Guð nútímans, hin heilaga samkynhneigð.
Nýr guð hefur nú litið dagsins ljós, hin heilaga Samkynhneigð Honum skal allur lýður lúta eða hafa verra af. Að mæla gegn þessum guði nútímans er nú kallað guðlast þótt guðlast hafi fyrir löngu þótt úrelt, þegar talað er um Guð biblíunnar.
Það er með þennan guð eins og hinn ævaforna Guð biblíunnar að hann er andi, bara nútímalegri. Í stað þess að kalla fólk, þá beygir hann fólk undir sinn vilja. Flestir sem hafa beygt sig, hafa lýst þeirri baráttu sem það kostaði. Fyrst við þá sjálfa, að sigra sína eigin samvisku og síðan að koma út úr skápnum, eins og það kallast.
Þessi nýi guð nútímans krefst algjörrar undirgefni af sínum börnum. Ekki bara það, heldur boða spámenn hans fagnaðarboðskapinn djarflega og krefjast þess einnig að ríkisstjórnir og önnur yfirvöld beygi sig og taki trúna.Eins og flestir vita hefur guði nútímans tekist þetta ætlunarverk sitt nokkuð vel. Alþingi Íslendinga beygði sig í auðmýkt og sagði að aumingjarnir sem væru að missa heimili sín gætu bara beðið. Guð nútímans skyldi sko hafa forgang.
Einu sinni á ári fer kirkja þessa guðs í göngu niður Laugaveg, og þá klæðist fólk fatnaði, sem berar ákveðna líkamshluta á ögrandi hátt, því guð nútímans hefur sagt að hann sé kominn til að ögra gömlum, asnalegum siðferðisgildum. Ekki amast lögregluyfirvöld við þessu, en mér segir svo hugur að ef okkur hinum smælingjunum dytti í hug að ganga berrassaðir niður Laugaveginn, þá yrði okkur að sjálfsögðu stungið inn.
Það er bara eitt vígi sem enn er eftir, og það er Guð biblíunnar, sem nú á að beygja. Þar hófst hinn guðinn handa í prestastétt og tókst fljótlega að hrífa með sér frjálslynda, unga presta, sem tóku trúna og játuðust guði nútímans og segja þeir hinir sömu nú, að Guð Biblíunnar sé bara alltof gamaldags, Hann fylgist ekki lengur með (nú)tímanum
Biskup þjóðkirkjunnar á Íslandi hefur nú beygt sig í auðmýkt og beðið herra guð nútímans auðmjúklega afsökunar á því að hafa verið svo mikill kjáni að skilja ekki hver væri hinn sanni Guð.
Þessi nýi guð nútímans hefur komið því til leiðar að allir sem ekki tilbiðja hann og beygja sig, kallast nú gagnkynhneigðir, fordómafullir, kærleikslausir, skilningslausir, miskunnarlausir, fornaldarmenn, fólk sem virðist ekki vita á hvaða öld það lifir.
Fyrir mig gamlan manninn sem ennþá lifi við þá fornaldarhugsun að 2+2 =4 , þá er þetta hliðstætt við að einhver reyni að berja það inn í minn haus, að nú sé komið árið 2010 og 2+2 = 5 Að halda því fram að tveir karlmenn geti verið hjón, er jafn óskiljanlegt í mínum huga og að 2+2 geti verið 5. Hjónaband kemur frá hjú, sem er hvorugkynsorð yfir karl og konu. Fyrir hjónaband þarf því karl og konu. Þetta hefur ekkert með neina fóbíu að gera, ekki heldur hvort ég elska þennan eða hinn, þetta er einfaldlega íslensk málfræði.Þar fyrir utan er ég þeirrar skoðunar að nýju lögin sem Alþingi hefur sett varðandi þessi mál, séu atlaga að sköpunarverki Guðs og kristinni kenningu.Þessi lög hafa einfaldlega ekkert með mannréttindi að gera. Það segir meira að segja Mannréttindadómstóll Evrópu í nýlegum úrskurði. Það gleymdist að endurmennta hann í þessari nýju kenningu.
Trúmál og siðferði | Breytt 9.7.2010 kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (128)
23.6.2010 | 23:57
Sumarmót Hvítasunnukirkjunnar
Nú líður að sumarmóti Hvítasunnukirknanna sem í ár er haldið í Keflavík. Þetta mót er eiginlega endurkoma gömlu mótanna, sem mín kynslóð ólst upp við. Nema í þá daga stóðu mótin yfir í 7 daga.
Nú, á forsíðu :www.keflavikgospel.is er plakat sem hægt er að smella á þar sem upplýsingar eru um mótið og samkomutíma.
Það er von okkar í Keflavík að þetta megi vera tími uppörvunar og endurnýjunar, auk þess að við eigum gott samfélag.
Við ætlum að hafa fjölbreytilega dagskrá. Það verða sönghópar frá Keflavík, Akureyri.ofl.
Nú ræðumenn verða:
Fimmtudagur kl. 20.00 Kristinn Ásgrímsson
Föstudagur kl. 15.00 Guðni Hjálmarsson
Föstudagur kl. 20.00 Aron Hinriksson
Laugardagur kl. 10.00 Karl Stefán Samúelsson
Laugardagur kl. 20.00 Snorri Óskarsson
Sunnudagur kl. 11.00 Vörður Traustason
Kvöldsamkomurnar og sunnudagssamkoman eru haldnar í Ytri Njarðvíkurkirkju, en aðrar samkomur í Hvítasunnukirkjunni.
Allir velkomnir .
Trúmál | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
- Aðalbjörn Leifsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Aida.
- Árni þór
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Baldur
- Flower
- Gladius
- Guðrún Markúsdóttir
- Gísli Torfi
- gudni.is
- Hafsteinn V Eðvarðsson
- Kaleb Joshua
- Högni Hilmisson
- Þórarinn Þ Gíslason
- Jón Valur Jensson
- Kafteinninn
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Mofi
- Ólafur Jóhannsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Ruth
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Snorri Óskarsson
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Styrmir Hafliðason
- Þormar Helgi Ingimarsson
- Linda
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Benedikta E
- Eygló Hjaltalín
- Sverrir Halldórsson
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Hörður Finnbogason
- Jón Ríkharðsson
- Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Ólöf Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Friðrik Agnar Ólafsson Schram
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Óskar Sigurðsson
- Valdimar Samúelsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2019
- Október 2018
- Desember 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2015
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Nóvember 2014
- Maí 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Desember 2011
- Júlí 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Hjálparstarf
Barnahjálp Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík
Hvítasunnukirkjan í Keflavík er í samstarfi við "New Life Africa International" að skapa götubörnum í Nakuru Kenya framtíð. Banka upplýsingar: 1109 -05 - 411999 Kt. 620180-0259