23.10.2015 | 12:32
Samkynhneigð , nafli alheimsins ?
Hommahatarar halda sig til hlés, segir hinn landskunni Páll Óskar um leið og hann fagnar því að innræta börnum landsins hið nýja fagnaðarerindi. Ungir sjálfstæðismenn vilja nú aðskilja ríki og kirkju og færa prestverk til sýslumanns til að þóknast hinum nýja guði sem ég hef áður kallað " Guð nútímans " hin heilaga samkynhneigð.
Hvað er eiginlega að í þessu þjóðfélagi ? Er samkynhneigð viðmið fyrir öll siðferðis gildi og alla stjórnskipun í landinu ?
Má ég ekki lengur gifta mig í kirkju af því að það hentar ekki samkynhneigðum ?
Ég tel að það sé kominn tími á nýtt stjórnmálafl í þessu landi. Það sem einu sinni var sjálfstæðisflokkur virðist því miður ekki vera það lengur.
Afglæðpavæða fíkn ? Mikil viska það, er ekki nær að halda áfram að hjálpa fólki að sigrast á fíkn sinni, eins og við höfum verið að gera. Ef fíknin leiðir til dauða, er það ekki glæpur ?
Væri ekki nær að spyrja, af hverju fíkn ? Hvað get ég gert til að ánetjast ekki ? Hver er rót fíknar ?
Gæti verið að það sé eitthvað sem enginn vill tala um ?
Hvað með hugtakið : Synd skal ekki drottna yfir yður ? Nei, það er of gamaldags, við lögleiðum syndina, svo reynum við að finna upp hjólið.
Gangi ykkur vel, ungir sjálfstæðismenn.
Hjónavígslur aðeins hjá sýslumanni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.3.2015 | 23:20
Vagga íslam
Einkennileg frétt að mínu mati, Saudi Arabía " Fasistaríki " segir Salmann Tamini,en virðir þá og styður baráttu þeirra. En þessi þjóð er vagga íslam og hlýtur því að sýna okkur ávöxtinn að þeirri hugmyndafræði.
Félag múslima á Íslandi mun aldrei þykkja nein gjöf frá fasista rikið S.A. Við vörum aldrei spurðir og viljum ekki hafa neit frá þeim. Við virðum SA þjóðin og mun hjálpa þeim með þeirra baráttu, skrifar Salmann.
Þiggja ekki gjafir fasistaríkis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.3.2015 | 22:50
Frelsa oss frá illu
Hér er bréf frá eiginkonu manns, sem var hýddur opinberlega í Saudi og dæmdur í 10 ára fangelsi, hver er sökin, jú hann sagði sína skoðun á bloggi. Nú eru Avaaz samtökin að biðja okkur um að skrifa undir áskorun til þýska ráðherrans Sigmar Gabríel sem er á leið í opinbera heimsókn til Saudi Arabíu. Og ég vísa til bréfsins hér fyrir neðan, þar sem kona hans segir að 50 höggum sé lokið, þá eru bara 950 eftir. Saudi Arabía er vagga Islam, landið þar sem Múhameð markaði sín spor. Ein trú og enginn önnur og ef einhver tjáir sig ekki í samræmi við það, þá tekur hann afleiðingunum.
Viljum við virkilega fá þessa hugmyndafræði inn í landið okkar ?
Dear Avaaz members,
His hands and feet in shackles, his face contorted with pain, for everyone to see. It's unbearable to think this is how they publicly flogged my husband, 50 times over. Now he could even be beheaded -- but you can help me save him!
My name is Ensaf Haidar and Raif is my husband. Last year, he was sentenced to 10 years in jail and 1,000 lashes for "insulting Islam" -- his crime was that he voiced his opinion on a blog. Raif is a peaceful man and a loving father -- our three children and I miss him dearly and we fear for his life.
Now Germany could help us free him: In 3 days, Sigmar Gabriel, Germanys Minister of Economic Affairs, will travel to Saudi Arabia -- and if he uses his influence to take a stand for Raif, he could force Saudi leaders to reconsider.
I have personally asked Sigmar Gabriel for help. But my voice alone is not strong enough. That's why I ask you to support my appeal so that we can see him off with a huge call from around the world to negotiate Raif's release. Please join me now and share this with everyone you know:
https://secure.avaaz.org/en/free_raif_badawi_sl/?bJdOvdb&v=54748
Vissi ekki af fjármagninu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2015 | 22:30
Þó að Jón hafi kvatt, er Guð enn að störfum
Heimskuleg var grein Jóns Gnarr í Fréttablaðinu um þessa helgi. Reyndar ekki í fyrsta skipti sem þessi maður auglýsir heimsku sína.
Hins vegar er Guð til, þótt Jón hafi ekki fundið. Það efast enginn um að flugvélin frá Malaysia Airlines Flight 370 hafi verið til, þótt ekki hafi hún fundist.
Það er eins með Guð skaparann, hann var á undan Jóni nokkrum Gnarr og mun einnig vera til staðar eftir að Jón er horfin héðan af jörð.
Síðasti fundur Jóns Gnarr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2015 | 18:54
Hún var sannur vottur hins sanna Guðs kærleikans.
Get ekki annað en dáðst að þessari ungu konu, sem í raun gaf líf sitt fyrir aðra og gat ekki horft aðgerðarlaus upp á þjáningar fólksins í Syrlandi.
Set hér inn brot úr bréfi sem hún sendi föður sínum.
Fann Guð í þjáningum annarra
Í gærkvöldi minntist fjölskylda Kaylu hennar og vísaði meðal annars til bréf sem hún sendi föður sínum á afmælisdegi hans árið 2011: Ég mun alltaf leita Guðs. Sumt fólk finnur Guð í kirkju. Aðrir finna Guð í náttúrunni. Sumir finna Guð í ást en ég finn Guð í þjáningum. Ég hef vitað það í talsverðan tíma hvert hlutverk mitt í lífinu er: að nota hendur mínar sem tæki til þess að draga úr þjáningum.
Blessuð sé minning hennar.
Kayla Mueller
Hvar er heimurinn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2014 | 18:20
Má ég þá heldur biðja um kristin gildi.
Margir segja að hverju við trúum skipti engu máli. Það skiptir greinilega máli þarna.
Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.
Sá sem vill vera mestur yðar á meðal, hann sé þjónn yðar allra.
Er ekki miklu einfaldara að hlíta boðum Krists, heldur en indverskri heimspeki ?
Myrt vegna þjóðfélagsstöðu sinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.5.2013 | 11:59
Orð í tíma töluð.
Australian Prime Minister does it again!!
This woman should be appointed Queen of the World.. Truer words have never been spoken.
Læt fréttina fylgja hér á ensku:
.
| ||||
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.9.2012 | 16:40
The way we cope with it is what makes the differnece
Life ends..when you stop Dreaming,
Hope ends..when you stop Believing,
Love ends.. when you stop Caring,
And Friendship ends.. when you stop Sharing!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2012 | 20:26
Jóga og ávöxtur þeirrar andlegu iðkunar
Maður sem ég kannast við, heimsótti Indland nýlega og segir frá atviki sem hafði djúpstæð áhrif á líf hans.
Frásögn hans fer hér á eftir:
Í síðustu viku þegar ég var í Indlandi og horfði í augun á Divya, 4 ára stúlku, sem var skelfd og hjálparvana.Foreldrar hennar höfðu skilið hana eftir í vegarkantinum í Tanuku, austur hluta Andhra Pradesh, vegna þess að þau áttu 3 stúlkur fyrir og vildu eignast son.
Þegar ég hitti þessa litlu stúlku, þá var ekki hægt að fá hana til að brosa, hún var í áfalli. Vinur minn Raja, sem fann hana tók hana heim á stúlknaheimilið sem hann og kona hans reka. Þau sögðu mér að Divya hefði ekki talað eitt orð í 4 daga.
Hún grætur sig í svefn á kvöldin og hún skilur ekki hvað er um að vera. Það eru 30 stúlkur á heimili Raja og allar þeirra hafa svipaða sögu. Sumar urðu munaðarlausar þegar foreldrar þeirra dóu, en sumum þeirra var kastað út, vegna þess að þær lifa í þjóðfélagi sem vanvirðir konur. Tvær þessara stúlkna fundust lifandi í öskutunnum þegar þær voru ungabörn.
Raja hefur einnig fundið látin stúlkubörn í vegakantinum í ruslahrúgum. Svín höfðu étið hluta af líkama þeirra.
Vikuna sem ég átti með Raja og konu hans ásamt stúlkunum, sem búa í húsi með 3 herbergjum, 10 stúlkur í hverju herbergi, sofa á mottum á gólfinu. Það er aðgangur að 2 salernum en engin bað aðstaða.
Þessi hjón eiga einnig 2 börn sjálf, en þeim tekst samt að fæða munaðarlausu stúlkurnar á grænmeti og hrísgrjónum á hverjum degi. Þær fá smá kjötskammt einu sinni í viku.
Síðasta sunnudag eftir kirkju fórum við með allar stúlkurnar í Vatnsgarðinn í Tanuku. Það kostar $2 inn og auðvitað komast fátæku börnin aldrei þangað. Þessar stúlkur höfðu aldrei séð sundlaug.
Þær drífðu tánum varfærnislega í vatnið , en eftir smá tíma þá voru þær farnar að leika og skvetta vatni hver á aðra .
Allar nema Divya, litla 4 ára stúlkan sem ég sagði ykkur frá . Hún var mjög hrædd og reyndi jafnvel að flýja út úr Vatnsgarðinum. Og þegar að Raja náði í hana þá sat hún bara einsömul.
En áður en ég fór heim þá hafði kærleikur þessara hjóna unnið hjarta hennar og hún brosti sínu fyrsta brosi og tók þátt í söng um Jesú með hinum stúlkunum.
Lækning var byrjuð í hjarta þessarar ungu stúlku, þökk sé Raja og konu hans fyrir ást þeirra og umhyggju.
Það má segja að saga Divya er endurspeglun á ástandinu í Indlandi í dag, þar sem konur og stúlkur þurfa að líða fyrir grimmd og höfnun.........
Ég læt hér staðar numið með frásögnina, en það sem vakti mig til umhugsunar er, að sú hugsun sem er orsakavaldurinn hér, er einmitt trúin. Það skiptir máli hverju við trúum. Hér sjáum við glöggt dæmi um ávöxtinn af trú hindúa.
Það sem skelfir mig þó enn meir er hve Vesturlandabúar hrífast af þessari trú. Jóga og hindúismi eru samofin. Það er ekkert Jóga án Hindúisma og enginn Hindúismi án Jóga. Það sem fæstir vita um Jóga er, að andlega iðkunin gengur m.a út á leysa úr læðingi snákinn innra með þér.
Ég ætla að halda mér við Drottin Jesú Krist, sem forfeður okkar tilbáðu og hefur gefið okkar landi hingað til heilbrigð gildi, þar sem við berum virðingu fyrir stúlkubörnum, jafnt sem drengjum.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.7.2012 | 22:24
Friðarverðlaun Nóbels, helfarir,hetjur og gildi lífsins.
Irene Sendler
Þess er minnst í Póllandi í dag að 70 ár eru liðin síðan Þjóðverjar hófu að flytja gyðinga úr gyðingahverfinu í Varsjá til útrýmingarbúðanna í Treblinka. Þess er einnig minnst að eitt ár er liðið frá hryðjuverkunum í Útey í Noregi.
Það sem fékk mig til að rita þessa færslu er frásögn af konu sem ég kalla eina af hetjum helfararinnar í Póllandi. Hún hét Irina Sendler og hún lést árið 2008, 98 ára gömul.
Irene var tilnefnd til Nóbelsverðlauna árið 2007, sem hefði sennilega ekki breytt miklu fyrir hana, en hennar framlag virtist ekki vega þungt í samanburði við " slide mynda show Al Gore on global warming."
En hér kemur frásögnin af Irene Sendler.
Í seinni heimstyrjöldinni fékk Irene leyfi til að vinna við holræsin í Varsjá sem pípulagningamaður. Hún átti sér falið markmið.
Irene smyglaði út ungabörnum gyðinga í verkfærakassanum sínum. Hún hafði einnig strigapoka í skottinu á bíl sínum fyrir stærri börn. Irene átti hund sem hún hafði í bílnum og hún þjálfaði hundinn til að gelta í hvert sinn sem Nasistar hleyptu henni inn eða út úr gettóinu. Hermennirnir voru lítt hrifnir af hundinum, sem með gelti sínu yfirgnæfði öll hljóð sem börnin kunnu að gefa frá sér.
Henni tókst að bjarga 2500 börnum áður en upp um hana komst, hún var handtekin og Nasistar brutu bæði hendur hennar og fætur fyrir utan aðrar barsmíðar.
Irene hélt skrá með nöfnum allra barna sem henni tókst að smygla út, í glerkrukku sem hún gróf niður undir tré í bakgarði sínum. Eftir stríðið reyndi hún að hafa upp á foreldrum sem hefðu getað lifað af og sameina þannig fjölskyldur. Flestir þeirra voru dánir. Hún hjálpaði við að koma börnunum fyrir í fóstur og sum voru ættleidd.
Eins og ég sagði áður , þá var þessi kona útnefnd til friðarverðlauna Nóbels, en norsku nefndinni þótti ekki nógu mikið til hennar verka koma, í samanburði við það sem Al Gore hafði gert.
Athyglistvert að síðar fær maður að nafni Barack Hussein Obama friðarverðlaun fyrir vinnu sína að samfélagsmálum.
Nokkrum árum áður hafði hryðjuverkamaðurinn Yasser Arafat fengið friðarverðlaun Nóbels.
Frá mínu sjónarhorni er Irene Sendler hetja, á meðan Al Gore og Barack Obama er sjálfsagt ágætist menn . Yasser Arafat var hins vegar ekki maður friðarins, fremur en Anders Breivik.
Fórnarlamba helfararinnar minnst í Varsjá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
- Aðalbjörn Leifsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Aida.
- Árni þór
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Baldur
- Flower
- Gladius
- Guðrún Markúsdóttir
- Gísli Torfi
- gudni.is
- Hafsteinn V Eðvarðsson
- Kaleb Joshua
- Högni Hilmisson
- Þórarinn Þ Gíslason
- Jón Valur Jensson
- Kafteinninn
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Mofi
- Ólafur Jóhannsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Ruth
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Snorri Óskarsson
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Styrmir Hafliðason
- Þormar Helgi Ingimarsson
- Linda
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Benedikta E
- Eygló Hjaltalín
- Sverrir Halldórsson
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Hörður Finnbogason
- Jón Ríkharðsson
- Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Ólöf Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Friðrik Agnar Ólafsson Schram
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Óskar Sigurðsson
- Valdimar Samúelsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2019
- Október 2018
- Desember 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2015
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Nóvember 2014
- Maí 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Desember 2011
- Júlí 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Hjálparstarf
Barnahjálp Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík
Hvítasunnukirkjan í Keflavík er í samstarfi við "New Life Africa International" að skapa götubörnum í Nakuru Kenya framtíð. Banka upplýsingar: 1109 -05 - 411999 Kt. 620180-0259