Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Er líklegt að Össur komi á friði fyrir botni miðjarðarhafs ?

Sonur hamasMerkileg þykir mér sú stefna sem þessi vinstri stjórn hefur mótað í málefnum Palestínu.

Að vísu hafði forveri Össurar Ingibjörg öðlast breytta sýn, þegar hún heimsótti bæði Ísrael og Gasa.

Þá uppgötvaði hún að það voru tveir aðilar sem áttu í deilu, en ekki bara hinn vondi Ísrael að kvelja lítilmagnann. En þannig hljómar fréttaflutningur oftast á Íslandi. Ég hef ekki heyrt eða séð í fréttum hér, að 10 flugskeytum var skotið frá Gasa inn í Ísrael um síðustu helgi.

En nýlega kom út bók, sem tekur á kjarna þessara deilumála, skrifuð af syni eins þeirra sem stofnuðu Hamas samtökin árið 1986. Þar lýsir þessi ungi maður báðum hliðum og segir frá æsku sinni, þar sem hann kastar grjóti að ísraelskum hervélum, frá dvöl sinni í ísraelsku fangelsi,   dregur upp mynd af " friðarverðlaunahafanum og hryðjuverkamanninum Yasser Arafat" , sem hann lýsir sem athyglissjúkum, slægum og gjörspilltum manni.

Ennfremur segir þessi ungi maður frá því hvernig hann hætti að trúa á þau lífsgildi sem hann hafði alist upp við.

Ég held að þessi bók, sé góð fyrir alla, hvað skoðun sem þeir hafa á málefnum miðausturlanda.

Láttu ekki fordóma stöðva þig í að lesa þessa bók.

Mjög spennandi bók, sem fæst í flestum bókaverslunum.

 


mbl.is Ræddu leiðir til að endurvekja friðarferlið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindi á Íslandi ??

Í þessarri frétt telur ráðherrann okkar að flóttamenn fái réttláta meðferð í Noregi. En því miður er því ekki svo farið. Fólk myndi ekki flýja frá Noregi ef það fengi réttláta meðferð. Nýlega var innflytjendalögum breytt í Noregi. Fólk sem var búið að koma sér fyrir vera þar jafnvel 12 ár í vinnu og búið að eignast heimili lenti aftur á byrjunarreit.

Utanríkisráðherrann okkar hefur farið mikinn undanfarið og talað um mannréttindabrot Ísraelsmanna. En hvað gerum við íslendingar við fólk sem er að reyna bjarga lífi sínu og kemur hingað til lands. Jú, við bjóðum það velkomið með 30 daga fangelsi. Ég tel að minn kæri Össur mætti rifja upp söguna, sem hann lærði í Hliðardalsskóla forðum, " um bjálkann og flísina.

Nýlega komu hingað til lands 3 Eþíópu menn, fólk með menntun, kristið og þráir ekkert heitar en að búa í sínu heimalandi. Þau höfðu dvalið 4-5 ár í Noregi, og þar var þeim synjað um dvalarleyfi og átti að senda þau til baka til Eþíópíu. Þau tóku til sinna ráða og fengu sér vegabréf, og freistuðu þess að komast til Kanada, þar sem þau segja að menn hafi skilning á málefnum Eþíopíu. En eins og svo margir aðrir þá voru þau stöðvuð í Leifstöð, þar sem þau þurftu að millilenda.

Fengu að dúsa í hegningarhúsinu á Skólavöðustíg í 15 daga, fengu styttingu á dómi sínum, sennilega vegna þrengsla í íslenskum fangelsum. En hjartanlega velkomin til Íslands samt. Nú, þau áttu ekki annars úrkosta en biðja um hæli hér á landi, þótt það væri kannski ekki það sem þau vildu.

Nú eftir u.þ.b. mánuð þá fengu þau bréf frá úlendinga stofnun, þar sem þeim er tjáð að þeirra mál verði ekki tekið fyrir á Íslandi, þau verði send til Noregs.

Og það þýðir í raun að þau verða send til Eþíópíu, þar sem þeirra bíður fangelsi og pyntingar. Af hverju ? Jú þau deila ekki sömu pólitísku skoðun og forseti landsins.

Fyrir þá sem ekki vita, að eftir kosningar í Eþíópíu 1995, þá gerðust svipaðir atburðir og eru að gerast í Sýrlandi núna. Pólitískir andstæðingar voru miskunnarlaust drepnir, fangelsaðir og pyntaðir.

Frjálsir fjölmiðlar eru að mestu bannaðir og fjölmiðlamenn hafa mátt dúsa í fangelsum aftur og aftur.

Ég spyr, ef við íslendingar teljum oss þess umkoma að skipta okkur að málum annarra þjóða, hvernig væri að líta í eigin barm.

Þessir Eþíópíumenn hafa komið á samkomur hjá okkur í Hvítasunnukirkjunni í Keflavík og ég verð að segja að þetta fólk er örvæntingarfullt. Það óttast um líf sitt. Ég skora á ríkisstjórn Íslands að virða þau sjálfsögðu mannréttindi að hjálpa fólki sem berst fyrir lífi sínu.

Ég vil taka fram að margir hafa fengið góða og réttláta meðferð á Íslandi, en að bjóða fólk velkomið með fangelsisvist er ómannúðlegt.

Set inn slóð hér sem lýsir ástandinu í Eþíópíu:https://docs.google.com/viewer?a=v&pid=gmail&attid=0.2&thid=13130d1cb4320aa4&mt=application/pdf&url=https://mail.google.com/mail/?ui%3D2%26ik%3D82ecab8453%26view%3Datt%26th%3D13130d1cb4320aa4%26attid%3D0.2%26disp%3Dsafe%26zw&sig=AHIEtbQyWCH3N9tXWmwDBHyvcmKD9V3z3A



mbl.is Á að fá úrlausn í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leita leiða til að kasta evrunni

Nú er um að gera fyrir Jóhönnu og Steingrím að standa klár á því og grípa .....LoL

Það er sorglegt að þjóð okkar skuli kosta kapps um og eyða milljörðum í að fá að taka þátt í hruni E.S.B. Var ekki nóg að upplifa okkar eigið hrun.


mbl.is Evran byrði á Slóvökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að gefa með réttu hugarfari.

Á þessum tíma eru margir uppteknir af því hvað eigi að gefa, og enn aðrir velta því fyrir sér hvað sé í pakkanum þeirra.En svona til hugleiðingar eru hér tvær sögur sem segja okkur að það skiptir líka máli hugarfarið á bak við gjöfina.

Saga 1 : Árið 1977 voru hjón sem ákváðu að gefa 3 milljónir dollara til að reisa nýjan dýragarð fyrir börn í Central Park NY.  En fljótlega kom upp vandamál vegna þess að skiltið sem sagði hverjir gefendur væru var ekki nógu stórt. Einnig var það vandamál að einhverjir sem höfðu gefið til þessa málefnis 30 árum áður , þeirra skilti var stærra.  Það kom upp tillaga að skipta út nöfnum fyrri gefenda fyrir þá síðari, en þegar stjórn dýragarðsins kom saman þá hafnaði hún þeirri hugmynd. Það sem gerðist næst var að hjónin drógu gjöf sína til baka.

Saga 2. Charles Spurgeon  og kona hans seldu alltaf eggin frá hænum sínum.  Jafnvel nánustu ættingjar þurftu að borga. Vegna þessa,  þá var sagt um þau, að þau væru ágjörn.

Það var ekki fyrr en eftir að kona Spurgeon lést að allur sannleikurinn kom í ljós. Allur ágóði af eggjasölunni rann til tveggja fátækra ekkna.  Það var greinilegt að Spurgeon hjónunum fannst meira til þess koma hvernig Guð leit á þeirra gjöf , heldur en menn. Matt. 6.1

Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól 

Getur verið að skaparinn setji okkur í réttan líkama eftir allt saman ?

Athyglisverð  frétt í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað. Það hefur alltaf verið mín sannfæring að það besta sé að vera bara eins og maður er af Guði gerður.

Einhver sagði, ef við gerum núna það sem er erfitt, þá verður lífið létt. En ef við gerum núna það sem er létt, þá verður lífið erfitt.

Ekki ætla ég að gera lítið úr þeirri baráttu sem þeir einstaklingar eiga í sem eru óánægðir með kyn sitt, en það sem virðist heillandi og fýsilegt er ekki endilega það sem skapar lífsfyllingu og hamingju til frambúðar.


mbl.is Skipti tvisvar um kyn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er löggjafinn að hygla lögleysinu ?

Eitthvað finnst mér að alþingi Íslendinga sé nú að snúast upp í andhverfu sína. Ef tillagan verður samþykkt og jafnræðis á að gæta þá hljóta nú einhverjir fyrir austan fjall að athuga með að láta taka upp sín mál.
mbl.is Ekki árás á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppan og Neyðin

Fékk þetta bréf frá hjálparsamtökum sem hafa starfað á Haiti undanfarin 19 ár. Þótt það sé fjarri mér að gera lítið úr erfiðleikum fólks á Íslandi, þá held ég að við getum verið þakklát fyrir að búa á Íslandi í kreppu en ekki í neyðinni á Haiti. Ég birti hér hluta af bréfi sem er skrifað frá hjónum sem hafa helgað líf sitt til hjálpar hinum nauðstöddu íbúum á Haiti.

 

Hin fimm ára gamla Valdine beið þolinmóð eftir að móðir hennar kæmi heim frá vinnu. Það voru nú liðin tvö ár frá dauða föður hennar,  og nú barðist móðir hennar frú Pirre, á hverjum degi við að að fæða Valdine og hin börnin.Það myndi enginn velja að búa í Port au Prince.. þetta er borg með meira en milljón íbúa. Ruslahaugar hlaðast upp á hverju götuhorni og allt morandi í rottum, flugum og kakkalökkum.

Litla stúlkan á Haiti og yngri systkini hennar voru alltaf svöng. Móðir Valdine vann frá sólarupprás til sólarlags, en samt var aldrei nægur matur til að fæða öll börnin , eina máltíð á dag.  Margir dagar voru þannig að það var ekki til matur og móðir barnanna sagði þeim að sofa á maganum, til að þau finndu ekki eins fyrir hungrinu.

En dagurinn í dag var samt öðruvísi, Valdine var svöng en hún vissi að mamma fengi útborgað í dag og það yrði heit máltíð þetta kvöld. Eftir að bíða um stund úti, þá ákvað Valdine að fara inn og baða sig.Systkini hennar höfðu farið í heimsókn til skyldfólks, og hún hafði ekki farið með, því hún vildi bíða eftir að mamma kæmi heim og eldaði heita máltíð úr hrísgrjónum og baunum.

Valdine hellti vatni úr skál í litla balann og byrjaði að skvetta vatni yfir andlit sitt. Allt í einu byrjaði húsið að hristast og gólfið opnaðist og þakið kom niður. Það drundi í gamla steinsteypta húsinu, um leið og það hrundi saman yfir þessa litlu fimm ára gömlu stúlku.

Jarðskjálftinn sem nú hristi Haiti, deyddi meira en 230 þús manns. Valdine var skorðuð undir þungum steypuveggjum og  virtist bíða dauða síns.Þungur steinveggurinn kramdi hægri fótlegg hennar og líkami hennar var skorðaður fastur . Hin litla fimm ára Valdine var var í dimmri steinkistu með illa brotin fót.Hún minnist þess að liggja þarna undir steinsteypunni. Hún var þyrst, svöng og í kvölum. Hún var svo einmana og hrædd.... hún grét þar til hún féll í yfirlið eða sofnaði.

Nokkrum dögum síðar drógu björgunarmenn Valdine út  undan rústunum og hún var enn á lífi. Henni var ekið á sjúkrahús í Dominikanska lýðveldinu, þar sem það þurfti að taka hægri fót hennar af.

20 febrúar var hún send til okkar á "Recovery Field Hospital hér í " Love a Child" þorpinu okkar.  Þorpið okkar er orðið ljós mitt í myrkrinu fyrir svo mörg fórnarlömb jarðskjálftans. Valdine og móðir hennar voru settar í tjald með mörgum öðrum aflimuðum sjúklingum.

Ein af þessum sjúklingum var lítil stúlka sem heitir Mara.Sama dag , þegar jarðskjálftinn reið yfir sat Mara litla, átta ára gömul, á hinum enda Haiti á stétt fyrir framan húsið sem hún bjó í.  Mara hafði einnig misst föður sinn fyrir þremur árum síðan. Móðir hennar barðist líka þessari hörðu baráttu að fæða sín börn.  Hún byrjaði að selja hluti á götunum...

Það voru dagar sem móðir Möru vann sér inn nokkra dollara á dag, en síðan aðrir dagar sem hún kom heim tómhent. Lífið var erfitt, að sjá fyrir börnum og bara það að hafa handa þeim eina máltíð á dag.

12 janúar sama dag og Valdine var heima hjá sér að reyna þvo sér , þá sat Mara á stéttinni fyrir framan húsið þeirra og beið móður sinnar. Þegar síðan jarðskjálftinn skall á þá varð Mara undir húsinu og vinstri fótur hennar kramdist illa.

Frændi hennar heyrði hróp hennar og kom henni til hjálpar. Það var talið kraftaverk að honum tókst að ná stúlkunni undan þungum steypuveggnum. Eins og áður sagði var vinstri fótur hennar illa kraminn. Frændi hennar tók hana í fangið og hljóp af stað leitandi að hjálp. En það var því miður enga hjálp að fá. Göturnar voru lokaðar af húsarústum og alls staðar gat að líta látið fólk. Loksins fann hann bíl og bílstjóra sem bauðst til að koma stúlkunni á sjúkrahús.

Mara lenti á sama sjúkrahúsi og Valdine í Dóminikanska lýðveldinu og var síðan flutt til okkar á " Love a child Field " sjúkrahúsið.

Þar sem skortur var á tjöldum, settu læknarnir Möru í sama tjald og Valdine litla var, sem hafði misst hægri fótinn. Mara þurfti sjö aðgerðir á sínum fót, en samt tókst ekki að bjarga fætinum og hann var tekin af.Ég man eftir að ganga milli tjaldanna á landareign okkar, þar sem fórnarlömb jarðskjálftanna voru..... ég heyrði litla stúlku gráta og kveina og þegar ég leit inn í tjaldið, þá sá ég Möru liggjandi, hún var þá nýbúin í aðgerð og var mjög kvalin... ég hallaði mér yfir hana og tók utan um hana og byrjaði að gráta hljóðlega. Jafnvel þótt hún þekkti mig ekki, þá rétti hún úr sér og dró mig að sér og hélt mér fast, algjörlegra ókunnri manneskju.

Ég man eftir því að horfa á þessa litlu átta ára gömlu stúlku sem hafði misst vinstri fót sinn og á næsta fleti við hlið hennar var Valdine, sem hafði misst hægri fót sinn, það var mér næstum ofviða.....

Þessar tvær vikur eftir skjálftann hér á Haiti,  voru mjög erfiðar, ég hef aldrei upplifað að sjá lítil börn þjást svo mikið,  eftir að hafa alist upp hungruð, þá þessar hörmungar í ofanálag.

Sem ég gekk í gegnum tjaldraðirnar á hverjum degi, þá minnist ég þess augnabliks að ég fann fyrir "Von" Við vorum að bera heitan mat inn í tjöld fólksins, þegar ein móðir segir við mig: Þetta er í fyrsta skipti á ævinni, sem börnin mín hafa fengið 3 máltiðir á dag. Við þökkum þér og Guði.

 

Ég læt hér staðar numið í frásögn Sherry, en hún segir að þörfin á Haiti hafi aldrei verið meiri en nú. Margar ríkisstjórnir hafi lofað hjálp, en lítið hafi verið um efndir.

Hjálparsamtökin Love a child hafa starfað á Haiti síðan 1991 og voru stofnuð af hjónunum Sherry og Bobby Burnette.

Á hverjum degi fæða þau 5000 þúsund börn. Það er fyrir utan þá neyðaraðstoð sem þau veita nú í kjölfar jarðskjálftans.Merkileg hvað ein hjón geta gert.

Þau segja enn fremur að þau fái mat gefin frá ýmsum samtökum  í Bandaríkjunum, en það kostar tíu þúsund dollara að flytja einn gám með mat frá Bandaríkjunum til Haiti og það er kostnaður sem þau þurfa að sjá um.

En einn gámur þýðir 270.000 máltíðir.

Þannig að fyrir $ 1000  eða 138000 kr íslenskar er hægt að gefa 27000 máltíðir.

Ef þú vilt vera með þá bendi ég á síðuna: www. loveachild.com

 

 



mbl.is Yfir tuttugu milljónir í hjálparstarf á Haítí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem peningar geta og geta ekki keypt....

 

Þú getur keypt þér rúm fyrir peninga, en ekki svefn, bækur en ekki gáfur, mat en ekki matarlyst, hús en ekki heimili, lyf en ekki heilsu, vellystingar en ekki hamingju, ímynd en ekki karakter, trúarbrögð en ekki hjálpræði...

Þegar ég horfði á þáttinn frá starfi ABC í Narobi, þá kom upp í huga minn, hvað getum við Íslendigar gert til að hjálpa þessu fólki. Þarna eru um 100 þús manns í kringum sorphaugana, húsnæðislausir og lífbarátta þeirra snýst um að fá kannski eina máltíð á dag.

Margir segja að við séum ekki aflögufær, en  á sama tíma erum við að eyða milljörðum, sumir hafa nefnt töluna 7 milljarðar í heimskulegar umræður í að gerast aðilar að sökkvandi myntbandalagi og fá að taka þátt í að greiða skuldir Evrópuþjóða sem hafa eytt um efni fram.

Er hægt að hugsa sér eitthvað heimskulegara.

Stöðvum þessar umræður og hjálpum meðbræðrum okkar í Nairobi og Haiti og ég er sannfærður að efnahagur okkar mun blómgast og gleði landans aukast.

Með peningum er hægt að hjálpa bágstöddum.

Lögmálið um sáningu og uppskeru er enn í fullu gildi.

 


mbl.is Dagur ABC barnahjálpar á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð blessi Ísland

 

 Þessi orð komu upp í huga minn, þegar ég fékk bréf frá vini í Frakklandi, þar sem hann var að lýsa bágu efnahagsástandi Frakklands og tvísýnu E.S.B. landanna og sagði svo: Þegar öllu er á botnin hvolft, þá er Ísland ekki svo illa statt í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir.

Það er nefnileg þannig, að þegar stórt skip sekkur þá myndast mikið sog sem dregur allt nálægt með sér niður. Bréf þessa vinar míns lýsti ákveðnum ótta þeirra sem nú þegar tilheyra þessu stóra skipi, sem við köllum E.S.B, og margir héldu að væri ósökkvandi eins og Titanic forðum.

Getur verið að Guð hafi blessað Ísland frá því að fara um borð.  Tæpast yrði spillingin upprætt með því að fara um borð í það skip, sem nú siglir undir "Guðleysisfána"

Annað, þegar forsætisráðherra sagði þessi orð í árslok 2008 þá voru margir sem höfðu hann að háði. Það er hins vegar sannfæring mín að þessi orð hans hafi fært landinu meiri gæfu, heldur en erindisbréf núverandi stjórnar um aðild að hinu sökkvandi Evrópubandalagi.

Af hverju, jú ég ætla að leyfa hinum forna spekingi Salómon að svara því er hann sagði:

Þegar réttlátum fjölgar, þá gleðst þjóðin, en þegar óguðlegir drottna , andvarpar þjóðin. Orðskv. 29.2.

Þegar óguðlegum fjölgar, fjölgar og misgjörðum, en réttlátir mun horfa á fall þeirra. Orðskv. 29.16.

Að lokum vil ég vitna í hinn rússneska Alexander Solzhenitsyn sem sagði að : Skilin milli góðs og ills liggja ekki milli ríkja, stétta né stjórnmálaflokka, ...heldur þvert í gegnum séhvert mannlegt hjarta.

Guð blessi Ísland.

 


mbl.is Spilling í íslensku þjóðfélagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 42940

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband