Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2012
22.7.2012 | 22:24
Friðarverðlaun Nóbels, helfarir,hetjur og gildi lífsins.
Irene Sendler
Þess er minnst í Póllandi í dag að 70 ár eru liðin síðan Þjóðverjar hófu að flytja gyðinga úr gyðingahverfinu í Varsjá til útrýmingarbúðanna í Treblinka. Þess er einnig minnst að eitt ár er liðið frá hryðjuverkunum í Útey í Noregi.
Það sem fékk mig til að rita þessa færslu er frásögn af konu sem ég kalla eina af hetjum helfararinnar í Póllandi. Hún hét Irina Sendler og hún lést árið 2008, 98 ára gömul.
Irene var tilnefnd til Nóbelsverðlauna árið 2007, sem hefði sennilega ekki breytt miklu fyrir hana, en hennar framlag virtist ekki vega þungt í samanburði við " slide mynda show Al Gore on global warming."
En hér kemur frásögnin af Irene Sendler.
Í seinni heimstyrjöldinni fékk Irene leyfi til að vinna við holræsin í Varsjá sem pípulagningamaður. Hún átti sér falið markmið.
Irene smyglaði út ungabörnum gyðinga í verkfærakassanum sínum. Hún hafði einnig strigapoka í skottinu á bíl sínum fyrir stærri börn. Irene átti hund sem hún hafði í bílnum og hún þjálfaði hundinn til að gelta í hvert sinn sem Nasistar hleyptu henni inn eða út úr gettóinu. Hermennirnir voru lítt hrifnir af hundinum, sem með gelti sínu yfirgnæfði öll hljóð sem börnin kunnu að gefa frá sér.
Henni tókst að bjarga 2500 börnum áður en upp um hana komst, hún var handtekin og Nasistar brutu bæði hendur hennar og fætur fyrir utan aðrar barsmíðar.
Irene hélt skrá með nöfnum allra barna sem henni tókst að smygla út, í glerkrukku sem hún gróf niður undir tré í bakgarði sínum. Eftir stríðið reyndi hún að hafa upp á foreldrum sem hefðu getað lifað af og sameina þannig fjölskyldur. Flestir þeirra voru dánir. Hún hjálpaði við að koma börnunum fyrir í fóstur og sum voru ættleidd.
Eins og ég sagði áður , þá var þessi kona útnefnd til friðarverðlauna Nóbels, en norsku nefndinni þótti ekki nógu mikið til hennar verka koma, í samanburði við það sem Al Gore hafði gert.
Athyglistvert að síðar fær maður að nafni Barack Hussein Obama friðarverðlaun fyrir vinnu sína að samfélagsmálum.
Nokkrum árum áður hafði hryðjuverkamaðurinn Yasser Arafat fengið friðarverðlaun Nóbels.
Frá mínu sjónarhorni er Irene Sendler hetja, á meðan Al Gore og Barack Obama er sjálfsagt ágætist menn . Yasser Arafat var hins vegar ekki maður friðarins, fremur en Anders Breivik.
Fórnarlamba helfararinnar minnst í Varsjá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
- Aðalbjörn Leifsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Aida.
- Árni þór
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Baldur
- Flower
- Gladius
- Guðrún Markúsdóttir
- Gísli Torfi
- gudni.is
- Hafsteinn V Eðvarðsson
- Kaleb Joshua
- Högni Hilmisson
- Þórarinn Þ Gíslason
- Jón Valur Jensson
- Kafteinninn
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Mofi
- Ólafur Jóhannsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Ruth
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Snorri Óskarsson
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Styrmir Hafliðason
- Þormar Helgi Ingimarsson
- Linda
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Benedikta E
- Eygló Hjaltalín
- Sverrir Halldórsson
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Hörður Finnbogason
- Jón Ríkharðsson
- Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Ólöf Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Friðrik Agnar Ólafsson Schram
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Óskar Sigurðsson
- Valdimar Samúelsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2019
- Október 2018
- Desember 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2015
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Nóvember 2014
- Maí 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Desember 2011
- Júlí 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Hjálparstarf
Barnahjálp Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík
Hvítasunnukirkjan í Keflavík er í samstarfi við "New Life Africa International" að skapa götubörnum í Nakuru Kenya framtíð. Banka upplýsingar: 1109 -05 - 411999 Kt. 620180-0259