Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010
4.7.2010 | 22:30
Guð nútímans, hin heilaga samkynhneigð.
Nýr guð hefur nú litið dagsins ljós, hin heilaga Samkynhneigð Honum skal allur lýður lúta eða hafa verra af. Að mæla gegn þessum guði nútímans er nú kallað guðlast þótt guðlast hafi fyrir löngu þótt úrelt, þegar talað er um Guð biblíunnar.
Það er með þennan guð eins og hinn ævaforna Guð biblíunnar að hann er andi, bara nútímalegri. Í stað þess að kalla fólk, þá beygir hann fólk undir sinn vilja. Flestir sem hafa beygt sig, hafa lýst þeirri baráttu sem það kostaði. Fyrst við þá sjálfa, að sigra sína eigin samvisku og síðan að koma út úr skápnum, eins og það kallast.
Þessi nýi guð nútímans krefst algjörrar undirgefni af sínum börnum. Ekki bara það, heldur boða spámenn hans fagnaðarboðskapinn djarflega og krefjast þess einnig að ríkisstjórnir og önnur yfirvöld beygi sig og taki trúna.Eins og flestir vita hefur guði nútímans tekist þetta ætlunarverk sitt nokkuð vel. Alþingi Íslendinga beygði sig í auðmýkt og sagði að aumingjarnir sem væru að missa heimili sín gætu bara beðið. Guð nútímans skyldi sko hafa forgang.
Einu sinni á ári fer kirkja þessa guðs í göngu niður Laugaveg, og þá klæðist fólk fatnaði, sem berar ákveðna líkamshluta á ögrandi hátt, því guð nútímans hefur sagt að hann sé kominn til að ögra gömlum, asnalegum siðferðisgildum. Ekki amast lögregluyfirvöld við þessu, en mér segir svo hugur að ef okkur hinum smælingjunum dytti í hug að ganga berrassaðir niður Laugaveginn, þá yrði okkur að sjálfsögðu stungið inn.
Það er bara eitt vígi sem enn er eftir, og það er Guð biblíunnar, sem nú á að beygja. Þar hófst hinn guðinn handa í prestastétt og tókst fljótlega að hrífa með sér frjálslynda, unga presta, sem tóku trúna og játuðust guði nútímans og segja þeir hinir sömu nú, að Guð Biblíunnar sé bara alltof gamaldags, Hann fylgist ekki lengur með (nú)tímanum
Biskup þjóðkirkjunnar á Íslandi hefur nú beygt sig í auðmýkt og beðið herra guð nútímans auðmjúklega afsökunar á því að hafa verið svo mikill kjáni að skilja ekki hver væri hinn sanni Guð.
Þessi nýi guð nútímans hefur komið því til leiðar að allir sem ekki tilbiðja hann og beygja sig, kallast nú gagnkynhneigðir, fordómafullir, kærleikslausir, skilningslausir, miskunnarlausir, fornaldarmenn, fólk sem virðist ekki vita á hvaða öld það lifir.
Fyrir mig gamlan manninn sem ennþá lifi við þá fornaldarhugsun að 2+2 =4 , þá er þetta hliðstætt við að einhver reyni að berja það inn í minn haus, að nú sé komið árið 2010 og 2+2 = 5 Að halda því fram að tveir karlmenn geti verið hjón, er jafn óskiljanlegt í mínum huga og að 2+2 geti verið 5. Hjónaband kemur frá hjú, sem er hvorugkynsorð yfir karl og konu. Fyrir hjónaband þarf því karl og konu. Þetta hefur ekkert með neina fóbíu að gera, ekki heldur hvort ég elska þennan eða hinn, þetta er einfaldlega íslensk málfræði.Þar fyrir utan er ég þeirrar skoðunar að nýju lögin sem Alþingi hefur sett varðandi þessi mál, séu atlaga að sköpunarverki Guðs og kristinni kenningu.Þessi lög hafa einfaldlega ekkert með mannréttindi að gera. Það segir meira að segja Mannréttindadómstóll Evrópu í nýlegum úrskurði. Það gleymdist að endurmennta hann í þessari nýju kenningu.
Trúmál og siðferði | Breytt 9.7.2010 kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (128)
Bloggvinir
- Aðalbjörn Leifsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Aida.
- Árni þór
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Baldur
- Flower
- Gladius
- Guðrún Markúsdóttir
- Gísli Torfi
- gudni.is
- Hafsteinn V Eðvarðsson
- Kaleb Joshua
- Högni Hilmisson
- Þórarinn Þ Gíslason
- Jón Valur Jensson
- Kafteinninn
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Mofi
- Ólafur Jóhannsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Ruth
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Snorri Óskarsson
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Styrmir Hafliðason
- Þormar Helgi Ingimarsson
- Linda
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Benedikta E
- Eygló Hjaltalín
- Sverrir Halldórsson
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Hörður Finnbogason
- Jón Ríkharðsson
- Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Ólöf Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Friðrik Agnar Ólafsson Schram
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Óskar Sigurðsson
- Valdimar Samúelsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2019
- Október 2018
- Desember 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2015
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Nóvember 2014
- Maí 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Desember 2011
- Júlí 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Hjálparstarf
Barnahjálp Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík
Hvítasunnukirkjan í Keflavík er í samstarfi við "New Life Africa International" að skapa götubörnum í Nakuru Kenya framtíð. Banka upplýsingar: 1109 -05 - 411999 Kt. 620180-0259