Leita í fréttum mbl.is

Getur verið að skaparinn setji okkur í réttan líkama eftir allt saman ?

Athyglisverð  frétt í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað. Það hefur alltaf verið mín sannfæring að það besta sé að vera bara eins og maður er af Guði gerður.

Einhver sagði, ef við gerum núna það sem er erfitt, þá verður lífið létt. En ef við gerum núna það sem er létt, þá verður lífið erfitt.

Ekki ætla ég að gera lítið úr þeirri baráttu sem þeir einstaklingar eiga í sem eru óánægðir með kyn sitt, en það sem virðist heillandi og fýsilegt er ekki endilega það sem skapar lífsfyllingu og hamingju til frambúðar.


mbl.is Skipti tvisvar um kyn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú veizt alveg 100% hvað ég álít um þetta, Kristinn.

Guði treystum við fremur en mönnum.

Bezt að segja ekki meira; hótun hef ég fengið úr ólíklegustu átt.

Hef líka skárri og betri hlutum að sinna nú um stundir, sjá t.d. HÉR og HÉR!

Með kærri kveðju,

Jón Valur Jensson, 12.11.2010 kl. 00:13

2 identicon

Ef guð væri til, þá myndi hann ekki fyrirgefa ykkur fyrir að gera hann að smámenni, ala biblía

DoctorE (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 07:58

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

"Það hefur alltaf verið mín sannfæring að það besta sé að vera bara eins og maður er af Guði gerður".

Er þá ekki réttlætanlegt að laga vansköpun eða aðra fæðingargalla, sé með því hægt að hjálpa viðkomandi til betra lífs?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.11.2010 kl. 08:13

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það kyn, sem fólk fæðist í, er ekki fæðingargalli.

Jón Valur Jensson, 12.11.2010 kl. 09:39

5 Smámynd: Birnuson

Ég hygg að Axel eigi ekki við það á nokkurn hátt, Jón Valur, heldur hvort skilja eigi orð Kristins bókstaflega, þ.e. hvort orðin að vera „eins og maður er af Guði gerður“ merki að engan fæðingargalla megi laga.

Birnuson, 12.11.2010 kl. 12:02

6 identicon

"Það hefur alltaf verið mín sannfæring að það besta sé að vera bara eins og maður er af Guði gerður".

Þannig ef þú fæðist með fæðingargalla í hjarta, sjónlaus, eða lamaður þá áttu ekki að breyta því því Guð gerði þig svona..... Þannig þitt svar er bara ddeal with it!

........must be nice being you - everything figured out.

CrazyGuy (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 14:49

7 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Kæru vinir, það ætti nú að vera augljóst að athugasemd mín fjallar um  tengda frétt og þar af leiðandi er ég að tala um kynskipti.

Kristinn Ásgrímsson, 12.11.2010 kl. 15:45

8 Smámynd: Benjamín Plaggenborg

Kristinn, athugasemd þín var "Það hefur alltaf verið mín sannfæring að það besta sé að vera bara eins og maður er af Guði gerður." Þetta er alhæfing, ekki bara um kynskipti heldur allar líkamlegar aðgerðir.

Benjamín Plaggenborg, 12.11.2010 kl. 17:22

9 identicon

Axel, það er eitt að laga útstæð eyru.. það er vissulega annað að breyta getnaðarlim í leggöng og hormóna xy yifir í xx eða hina leiðina.

Persónulega, þá sé ég ekkert að því að óhamingjusamt fólk leggist undir hnífinn, en mér finnst að þegar meðfæddum lýtum sleppi þá eigi viðkomandi einstaklingur að greiða fyrir skurðinn sjálfur, en það er einungis mín skoðun.

P.S

Kynleiðrétting..... er hægt að búa til meira pólitískt rétthugsunarorð?Hvað er rangt, móðgandi eða óljóst við orðið kynskiptingaraðgerð ??Erum við ekki farin að ganga of langt í bullinu ???

runar (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 17:57

10 identicon

Þessi maður þjáist ekki af kyngreindarröskunn eins og þeir sem að teljast sem trans þjást af. Hann þjáist líklegast af einhverjum öðrum geðsjúkdómi sem að varð þess valdandi að hann hatar eigin persónu, og þar af leiðandi hefur hann haldið að með því að skipta um kyn myndi hann verða að annarri persónu. Það styður þau rök að þegar hann skipti aftur yfir í karlkyn þá tók hann ekki aftur upp upphaflega nafnið sitt.

Í ítarlegri fréttum kemur einnig fram að þessi maður smaug framhjá kerfinu til að fá hormónana og aðgerðina, en ef hann hefði farið í gegnum kerfið þá hefði honum aldrei verið heimilað hvorki að fá hormóna né að fara í aðgerðina, enda er það ekki heimilað nema það sé á hreinu að manneskjan gengur heil til skógar, sem að þessi maður gerir greinilega ekki. Og það var einmitt þessvegna sem að kerfið var búið til.

 Verst er í allri þessari sögu að núna munu mótmælendur þess að trans-fólk geti leitað réttar síns fá byr undir báða vængi með því að vitna í svo kallaða "trans-konu sem að vildi svo láta breyta sér aftur í mann" en það er alveg á hreinu þegar að rýnt er nánar í þessa sögu að þessi maður er alls ekki trans og þar af leiðandi er hann ekki dæmi um trans manneskju sem vill láta breyta sér aftur í upprunnalegt kyn, heldur eingöngu dæmi um afhverju kerfið er mikilvægt, til að tryggja að svona mál komi ekki upp, þó að vissulega sé aldrei hægt að koma algjörlega í veg fyrir það, því að þrátt fyrir allt þegar fólk á nægann pening þá getur það gert flesta hluti, sama hvort þeir eru löglegir eður ei.

Ásta Lovísa (IP-tala skráð) 13.11.2010 kl. 14:40

11 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Takk fyrir athugasemd þína Ásta.

Ég tel nú að fólk eigi að hafa frelsi til að vera eins og það vill. Ekki samt endilega á kostnað okkar skattgreiðenda. En þú kemur með ákveðnar skilgreiningar í svari þínu, eins og þú hafir verið læknir viðkomandi aðila.

Vilt þú þá meina að það sem þú kallar "trans" fólk sé haldið geðsjúkdómi ?

Kristinn Ásgrímsson, 14.11.2010 kl. 18:31

12 identicon

@ Kristinn Ásgríms

Því miður er það að vera Trans lagalega flokkað sem geðröskun (Gender identity disorder). 

Það er verið að berjast fyrir því að það verði hætt að skilgreina það sem geðröskun, og sú barátta genguralveg ágætlega.

Meðal annars hefur Óttar Guðmundsson (Ein af fáum manneskjum á landinu í heilbrigðisgeiranum sem hefur sérþekkingu á málum transfólks) Líst yfir því að allt bendi til þess að það verði tekið út næst þegar farið verður yfir 2 alþjóðlega staðla (sem verður gert 2014)

Grímur Ólafsson (IP-tala skráð) 15.11.2010 kl. 18:33

13 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Takk fyrir innlegg þitt Grímur,  ég vissi það ekki. Ég lít hins vegar á þetta sem val, sem byggist á þeim áhrifum eða upplifunum sem persónan verður fyrir. Greinilega telur persónan sem ég bloggaði um að hann hafi gert mistök. Ég tel því ekki að það hafi neitt með geðveiki að gera, hvorki fyrra eða síðara skiptið. En það sem ég vildi hins vegar benda á að þetta eru dýr mistök. Og þessi barátta fer fram í huganum og þess vegna skiptir máli hvernig þessu fólki er hjálpað.

Kristinn Ásgrímsson, 16.11.2010 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband