Leita í fréttum mbl.is

Umburðalyndi Guðs

 

 

Er Kristin trú umburðarlynd ?  Er Guð biblíunnar umburðarlyndur ?

Hvernig skilgreinum við umburðarlyndi ?  Þýðir það að samþykkja allt eða þýðir það að geta búið við eitthvað sem manni finnst óþægilegt, óaðlaðandi, ógeðfellt, eða óréttlátt ? 

Ég tel að umburðarlyndi þýði ekki samþykki, heldur eiginleiki til að sýna þolinmæði, kærleika og sjálfstjórn í kringumstæðum sem eru okkur ekki að skapi.Ég trúi að langlyndi og umburðarlyndi séu skyld hugtök. Umber Guð þá sem brjóta gegn boðum Hans ?

Svarið er já, því ef Guð er almáttugur Guð og skapari himins og jarðar og skapari minn og þinn, þá værum við vart hér ef Hann ekki hefði umborið okkar misgjörðir.

Rómverjabréfið 3.25 segir: ..þannig sýndi Guð réttlæti sitt, því að hann hafði í umburðarlyndi sínu umborið hinar áður drýgðu syndir...

2.Pét. 3.9 "Ekki er Drottinn seinn á sér með fyrirheitið, þótt sumir álíti það seinlæti, heldur er hann langlyndur við yður, þar eð hann vill ekki að neinir glatist, heldur að allir komist til iðrunar."

Að komast til iðrunar er að breyta um hugsunarhátt þ.e Guð býður eftir því að maðurinn vilji sjá hlutina á Hans (Guðs) hátt.  Hversu margir foreldrar hafa ekki beðið þess að börn þeirra í eiturlyfjaneyslu vildu sjá líf sitt á annan hátt ? Að þau vildu skipta um hugsunarhátt ? Guð er faðir sem elskar börnin sín . Þú getur kannski tekið börn þín og lokað þau inni bara til þess að uppgötva að þau byrja strax í neyslu og þau losna. En ef þú getur fengið þau til að hugsa öðruvísi eða gera iðrun þá er hægt að hjálpa.

Eins er það með eðli syndarinnar, Guð faðir okkar vill fá okkur til að hafna þessu eðli og taka við gjöf Hans í Kristi  sem er aðgangur að " Ríki Hans". Jóh. 3.3.

Hann hefur sýnt umburðarlyndi sitt frá sköpun heimsins.

Postulasagan 14.16 : " Hann hefur um liðnar aldir leyft, að sérhver þjóð gengi sína vegu "

Margir ásaka Guð fyrir umburðalyndi Hans og segja að ef Hann er almáttugur Guð af hverju grípur hann ekki inn í ranglæti heimsins. Hinir sömu ásaka einnig Guð fyrir að ætla á settum tíma að dæma heiminn.

Jesús Kristur sagði að faðirinn hefði sett tíma og tíðir af sjálfs síns valdi, sem segir okkur að hann sér tímann í öðru ljósi en við. Þannig að Guð mun opinbera réttlæti sitt á settum (sínum) tíma.

1.kor. 13.7. " Kærleikurinn umber allt"  Umber þá ekki kærleikurinn syndina, spyrja margir. Jú, vissulega umber  kærleikurinn syndir okkar, en segir okkur um leið að : " Guð mun leiða sérhvert verk fyrir dóm, sem haldinn verður yfir öllu því sem hulið er, hvort sem það er gott eða illt." Prédikarinn 12. 14.

Eitt  virðist þó vera erfitt fyrir Guð að umbera : " Skurðgoðadýrkun" þ.e . þegar"maðurinn" barn hans tekur til að dýrka aðra Guði. Eða falla fram fyrir líkneskjum, eða hafa samband við illa anda.

Ein besta myndin í biblíunni af umburðalyndi Guðs er sennilega sagan um týnda soninn. Þar lætur faðirinn soninn hafa sinn hluta af arfinum, sonurinn gerir síðan allt sem er andstætt vilja föðurins. Þegar sonurinn síðan kemur til sjálfs síns og vill snúa aftur, þá bíður faðirinn með opna arma og heldur veislu fyrir soninn.

Hins vegar er Guð orðheldinn. Ritningin segir: "að hann sé ekki maður að hann ljúgi né sonur manns að hann sjái sig um hönd." 4. Mós. 23.19

Jer. 1. 12. Sjá ég vaki yfir orði mínu til að framkvæma það.

2. Tím 3. 16 Sérhver ritning, innblásin af Guði er nytsöm til fræðslu - umvöndunar - til leiðréttingar til menntunar í réttlæti.

Eg tel að margir eigi erfitt með að skilja það að Guð sé trúr orði sínu. Af hverju ? Þeir hugsa ennþá öðruvísi en Guð. Guð er að bíða eftir að þeir geri iðrun. Þannig að við getum líkt Guði við föður sem allt sitt líf bíður eftir syni, sem er að eyðileggja líf sitt, bíður þess að geta miskunnað honum, en sonurinn velur myrkrið og lætur líf sitt að lokum af ofnotkun eiturefna og glatar lífi sínu. Var það föðurnum að kenna ? Nei það var val sonarins.

Vandinn við þá sem sjá Guð sem vondan og hefnigjarnan Guð er að þeir skilja ekki söguna. Fyrir þá eru engin eiturlyf til. Þannig að það er bara faðir að refsa syni. Menn gleyma að eins og Guð er til þannig er og djöfullinn til og því miður er það svo að margir velja það einfaldlega að þjóna honum. Umber Guð það ? Já , en það hryggir hann og hann bendir stöðuglega á rétta vegin í orði sínu.

Meira að segja kom Guð sjálfur til jarðar og umbar það að maðurinn sköpun hans krossfesti hann. Hann leið þolinmóður á krossi og sagði:" Ef mitt ríki væri af þessum heimi, þá hefðu þjónar mínir barist."Hugsunin í Hans ríki var og er öðruvísi og ef við viljum sjá hlutina í ljósi Guðs þá þurfum við menn einfaldlega að breyta okkar hugsun í stað þess að rembast stöðugt við að reyna breyta hugsun Guðs. Menn hafa reynt það gegnum aldirnar og eru enn að.

Jesús Kristur orðaði það svona : Gjörið iðrun, Guðs ríkið er í nánd.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að ævintýrum og þá sérstaklega ævintýrum um illa yfirnáttúrulega harðstjóra sem drepa alla á jörðinni, konur, nýfædd börn, dýr... allir myrtir í nóaflóðinu vegna kærleika og ástar.. úps er ég að segja vitlaust er þetta myndlíking eða dulin hótun

DoctorE (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 09:56

2 Smámynd: Flower

Þetta er alveg frábær grein hjá þér Kristinn og eins og töluð út úr mínu hjarta, sérstaklega þessi líking um hvernig Guð er eins og foreldri sem agar börn sín af elsku en ekki til að setja þau í einhver bönd. 

Og varðandi skilaboðin sem þú settir í gestabókina mína. Er það ekki simnet, þú skrifaðir simne. Ég ætla nefnilega að senda þér póst og kynna sjálfan mig svolítið betur. 

Flower, 1.11.2007 kl. 12:05

3 Smámynd: Jóhann Helgason

Kiddi svar við spuringu þinni eru CNN og Fox news ?????? Eru þeir sannleikans boðberar ? Hvað með öll þessi viðtöl við alla prestana  Kaþólsku Kirkjunni , Lútersku kirkjunni methodistar ,Presbyterian ,baptistar eru þau ekki systkini okkar  í Kristi ? mér langar soldið Kiddi minn að benda þér á það í kærleika Krists .

ég  vil taka  það skýrt  fram """"að gagnrýni mín  hefur  aldrei beinist  að starfinu í Ármúlanum, það var aldrei  í mínum huga  ,Enda hafði ég enga vitneskju um það starf .

Góð grein hjá þér Guð Blessi þig bróðir og varðveiti Þig , Þú ert Sannur Guðs maður .

Jóhann

Jóhann Helgason, 1.11.2007 kl. 15:45

4 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Er ekki tími fyri suma, to:  "Take the mask off " Mér fannst aldrei gaman á grímuböllum. Annars held ég að það leynist nú góð sál þarna á bak við.

Jóhann minn, vona að við hittumst fljótlega og ræðum saman. Þakka þér hlý orð, vona þú misvirðir ekki við mig að ég kýs frekar að ræða þetta persónulega. Guð blessi þig kæri bróðir.

Kristinn Ásgrímsson, 1.11.2007 kl. 17:51

5 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Flower, jú að sjálfsögðu átti það að vera simnet.is

Þakka þér þitt innlegg

Kristinn Ásgrímsson, 1.11.2007 kl. 17:53

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Frábær grein og þörf áminning. Takk fyrir að vera krists, Kiddi minn.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 1.11.2007 kl. 18:37

7 Smámynd: Jóhann Helgason

Sæll Kiddi Jú eftir á hyggja var þetta  uppstillingar spurning hjá mér , það er ekki ekki hægt að svara því Já eða  nei  beint á blogginu  ég skil það vel . Æi Fyrirgefðu mér það , Og ef ég hef verið dónalegur eða særandi  það var ekki ætlunin mín biðst innilega afsökunar á því  . 'Eg ætlaði bara að blogga um myndia sem sá J,C Usa  sem ég varð í gangji núna um allt  og var ekki inni því sem var ske hér á 'islandi .  'eg veit þú hefur verið vinna verulega gott starf . Og Guð Blessi þig fyrir það , Já myndin  af (mér fannst hún svo kúl ) passa vel við nikkið enoch , ég fann hanna netinu . þetta kemur í veg fyrir að greinar mínar lenda í morgunblaðinu

Guð Blessi Þig kæri bróðir

Jói

Jóhann Helgason, 1.11.2007 kl. 19:18

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Heill og sæll, Kristinn. Ég ætlaði einmitt að skrifa grein um þetta efni og byggja hana á góðri greiningu og úttekt. Er ekki hættur við það -- en á þó eftir að lesa þína í raun. Vil helzt ekki gera það, fyrr en ég hef lokið við mína!

Svo hvet ég þig, kæri bróðir í trúnni, til að setja þennan guðlastara "DoctorE" á bannlista, hann á hér ekki heima. Ósvinnu hans í 1. innlegginu er alveg hægt að svara, en ég hef ekki lyst á því að ræða við hann, eins og hann vogar sér að skrifa á sínu vefsetri og annarra. (Merkilegt, að hann skuli vera "bloggvinur" sumra, sem telja sig kristna.)

Með kærri kveðju og þakklæti fyrir allt, vinur,

Jón Valur Jensson, 1.11.2007 kl. 20:53

9 Smámynd: Flower

Jón Valur, þeir sem telja sig vera kristna og hafa Dokksa sem bloggvin kunna við hann. Enda eru þeir að spjalla við hann á öðrum vettfang líka. Eru þeir eitthvað minna kristnir fyrir það? Telst maður þá ekki kristin ef maður hefur samskipti við þá sem eru ekki kristnir? Ég verð að segja að ég er undrandi á þessari afstöðu þinni.

Flower, 1.11.2007 kl. 22:46

10 Smámynd: Linda

Takk fyrir þessa færslu Kiddi, Guð blessi þig og þinn söfnuð.

Linda, 2.11.2007 kl. 01:30

11 Smámynd: Sigvarður Hans Ísleifsson

Góð grein hjá þér Kiddi. Ég er allveg sammála því að umburðarlyndi er ekki það sama og samþyki. Jesús kom til að leysa okkur frá syndinni en ekki gefa okkur leyfisbréf fyrir henni. En umburðarlyndi er samt eitthvað sem maður má temja betur með sér. Því menn eiga það oft til að missa sig út í óþolinmæði gagnvart náunganum og ætlast til þess að hann verði eins og við viljum. En það er Guðs sem vinnur verkið og því bara að treysta honum fyrir því og taka fólki eins og það er.

Jóhann Helgason ég missti nú af því sem beindist að Ármúlanum en þú mátt spyrja mig að því hvað er að gerast þar enda einn af þeim sem starfa í Kærleikanum.

Sigvarður Hans Ísleifsson, 2.11.2007 kl. 13:47

12 Smámynd: Sigvarður Hans Ísleifsson

Jón Valur... Jesús var meðal þeirra sem voru syndarar.. DoctorE á eftir að frelsast og við eigum ekki að dæma neinn fyrir það sem þeir gera en við eigum að fyrirgefa öllum sama hvað þeir segja við okkur eða skrifa um okkur. Páll postuli var morðingi og myrti hina Kristnu en Guð mætti honum.

Róm.5:5 segir að kærleika Guðs er út hellt í hjörtum okkar og nýja þýðingin segir að kærleikur Guðs streymi í Hjarta okkar fyrir Heilagan Anda sem okkur er gefin..  

Frumtextin sem talar um þennan kærleika er Agape sem þýðir það að Kærleikur Guðs til allra manna er stærri og meiri en misgjörðir okkar allra til samans. Þennan fullkomna kærleika hefur Guð sett í hjarta okkar, til þess að við elskum alla menn jafnt án skilyrða óháð því sem þeir segja og gera. DoctorE má allveg  komenta eins og aðrir enda er þetta blogg um umburðarlyndi og því umberum við það sem hann skrifar..

Sigvarður Hans Ísleifsson, 2.11.2007 kl. 13:54

13 identicon

Flott komment Sigvarður......DoctorE á eftir að frelsast!! AMEN!!

Ása (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 16:11

14 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

(Merkilegt, að hann skuli vera "bloggvinur" sumra, sem telja sig kristna.)

Það heitir "kristilegt umburðarlyndi" kæri Jón Valur, fræðimaður eins þú hlýtur að eiga orðabók til þess að fletta því upp. Ekki nema ég sé svona "ókristinn" að umbera náunga minn, þótt nafnlaus sé.

Sigvarður hefur hárrétt fyrir sér, og sýnir einmitt "kristilegt umburðarlyndi". Sem menn mættu taka til fyrirmyndar.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 6.11.2007 kl. 19:43

15 Smámynd: Þormar Helgi Ingimarsson

Sæll Kiddi minn. Flott grein. Og mér finnst þú vera flottur forstöumaður og kennari í orði Guðs.

GUÐ blessi þig ríkulega.

Þormar Helgi Ingimarsson, 6.11.2007 kl. 22:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband