Leita í fréttum mbl.is

Það þarf meira afl til að skapa frið, heldur en stríð.

            

                     

 

Stríð virðist afl sem menn ráða vel við, en friður virðist hins vegar ofar mannlegum mætti. Gott dæmi eru mótmæli sem eiga að vera friðsamleg, hafa aftur og aftur endað með skrílslátum og ofbeldi, jafnvel gegn lögreglu.

Annað dæmi höfum við: Saga síðustu aldar kennir okkur einnig að þótt menn vilji halda frið þá er erfiðara að höndla en vilja. Tveir hörmulegustu atburðir síðustu aldar eru: Fyrri og síðari heimstyrjöldin.

Eftir fyrri heimstyrjöldina hittust margir af leiðtogum þjóða heims og lofuðu því, að þetta gerðist aldrei aftur. Þeir mynduðu með sér bandalag þjóðanna, bandalag sem hafði þá stefnu að stuðla að friði í heiminum. Þessi draumur varð ekki langlífur. Tuttugu árum síðar skellur síðari heimsstyrjöldin á.

Eftir síðari heimstyrjöldina, gerðu leiðtogar heims aftur með sér sáttmála eða viljayfirlýsingu, að heimsbyggðin þyrfti aldrei aftur að líða slíkar hörmungar, sem slíkt stríð hefur í för með sér. Samt hafa fleiri stríð verið háð eftir stofnun Sameinuðu þjóðanna, en fyrir tilurð þeirra . Og í dag má segja að tilgangur eða gagnsemi Sameinuðu þjóðanna sé eitt stórt spurningarmerki.

Einhver spurði: Af hverju getum við ekki búið saman í sátt og samlyndi? Af hverju eru mennirnir svo pirraðir ?Af hverju þurfa ættbálkar sífellt að eiga í óeirðum?  Af hverju þurfa börnin okkar að drepa hvert annað á götunni?

Af hverju ?

Syndaeðlið er óuppfyllt.

Strax í upphafi sjáum við einn anga syndaeðlisins, öfundina, að verki, sem endar með bróðurmorði.

1.Mósebók 4.2-9

2Síðar fæddi hún Abel, bróður hans. Abel varð hjarðmaður en Kain akuryrkjumaður.
3Einhverju sinni færði Kain Drottni fórn af ávexti jarðarinnar. 4Abel færði einnig fórn af frumburðum hjarðar sinnar og feiti þeirra. Drottinn gaf gaum að Abel og fórn hans 5en leit ekki við Kain og fórn hans. Þá reiddist Kain mjög og varð þungur á brún. 6Drottinn sagði við Kain: „Hví reiðist þú og ert þungur á brún? 7Er ekki svo að þú getur verið upplitsdjarfur ef þú gerir rétt, en gerir þú rangt þá liggur syndin við dyrnar? Hún girnist þig en þú getur sigrast á henni." [2]

Önnur hugsanleg þýðing: ... en þú skalt sigrast á henni.8Þá sagði Kain við Abel, bróður sinn: „Göngum út á akurinn." [3]  Og er þeir voru á akrinum réðst Kain á Abel, bróður sinn, og drap hann. 9Þá sagði Drottinn við Kain: „Hvar er Abel bróðir þinn?" Kain svaraði: „Það veit ég ekki. Á ég að gæta bróður míns?"

Orðskv. 27.4. Heiftin er grimm og reiðin svæsin, en hver fær staðist öfundina.

Orðskv.21.8   Boginn er vegur þess manns er synd er hlaðinn.

Þannig að rót vandans er syndin eða eðli syndarinnar. Margir bera óþarfar byrðar vegna syndar. Mörg börn verða því miður of oft fórnarlömb syndar þeirra sem eru í kring um þau.

Stríð og friður er því, spurning um hvað býr í hjarta mannsins. Sannur friður kemur frá hjarta mannsins, þegar hann hefur aflagt syndaeðlið og tekið á móti Honum, sem sagði, " Minn frið gef ég yður."

Orðskviðirnir 16:32  Sá sem stjórnar geði sínu er meiri en sá sem vinnur borgir.

Það er hægt að tala um frið, koma á friði jafnvel með hervaldi, en það er ekki fyrr en friðurinn kemur frá mannsins hjarta að hann er varanlegur.

Mér er kunnugt um það að jafnvel á þessum tíma eru Palestínumenn og Ísrelsmenn sem biðja saman, þrátt fyrir það að landar þeirra eigi í stríði.

Þeir hafa sameinast í þeim friði sem Jesús Kristur gefur.

Margir á Íslandi gagnrýna og mótmæla í dag. En hvað með þeirra hjarta ? Geta þeir stjórnað eigin geði ?Það er talað um að við þurfum nýja stjórn eða nýtt lýðveldi. En ég spyr, Hvað mun breytast ???

Eða viljum við byltingu eins og á Kúbu árið 1959, þar sem skipt var út spillingu og örbyrgð kom í staðin.

Nei, mannlegt eðli er spillt og syndugt, og það mun ekki breytast neitt, þótt skipt verði um ríkisstjórn.Nei, maðurinn virkar illa þegar hann er tekinn úr sambandi við skapara sinn og friðarhöfðingja.

Ísland þarfnast andlegar vakningar, þar sem við snúum okkur frá syndum okkar og auðmýkjum okkur fyrir skapara okkar okkar og Drottni.

 

 

 

   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Kristinn.

Þessi pistill þinn er þannig framsettur, að sem flestir ættu að lesa og íhuga gaumgæfilega.

Þakka þér fyrir.

Kær Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 21:50

2 identicon

Hæ Kiddi minn, ég hef ekki séð ykkur Dísu í langan tíma! Ég er flutt inn í hafnarfjörðinn...sem er þó engin afsökun að mæta ekki á samkomu  þarf að drífa mig af stað  Kíktu endilega á síðuna mína...þar geturu séð statusinn á okkur. Sjáumst!!

Svanhildur (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband