Leita í fréttum mbl.is

Vantrúarprestar með vantrúartrúboð í skólum.

 

 Las í fréttablaðinu í dag frétt um “trúfélagið Vantrú” . Þar kemur fram að þeir halda fyrirlestur á þemadögum í framhaldskólum.

Er ekki svolítil hræsni í því að vilja fara með sína “Vantrúarboðun” inn í skólana, en vilja síðan koma í veg fyrir að prestar þjóðkirkjunnar fái að boða sína trú í sömu skólum.

Hvar er nú lýðræðið ????? Af hverju á vantrú að hafa eitthvað fram yfir trú ??????

Fréttin segir einnig að séu ekki á móti kristnum hátíða höldum, sem sagt þeir vilja tileinka sér það góða frá kristindóminum, um leið og það kallast hindurvitni hjá okkur sem trúa.Ég óska öllum “ Vantrúarmönnum “ Guðs blessunar og gleðilegra jóla.

Megi augu þeirra opnast fyrir kærleika Jesú Krist og tilgangi lífsins, sem er samfélagið við skaparann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er eitt að  prestar fái að stunda trúboð í grunnskólum og annað félagasamtök fái að halda fyrirlestra á þemadögum í framhaldsskólum.

Tilgangur vantrúar er einnig ekki sá að vera andsnúinn trúarbrögðum, heldur einnig að berjast gegn hverslags hindurvitnum.

Bjarni (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 21:45

2 identicon

Akkúrat, Bjarni. Það er náttúrulega ekki hægt að bera leik- og grunnskóla saman við framhaldsskóla.

María (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 21:52

3 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

1. Þetta er í framhaldsskólum

2. Þetta er á þemadögum

3. Nemendur velja sér fyrirlestra 

Vantrú fer í framhaldsskóla

Matthías Ásgeirsson, 5.12.2007 kl. 21:53

4 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Velkominn Matthías,þakka innlitið, mér er nú farið að þykja vænt um þig, ég get alveg séð okkur sem trúbræður,svona bráðum. en ég held nú að prestarnir skaði ekki blessuð börnin.

Ertu þá sáttur við að Hvítasunnukirkjan fari líka í skólana á þemadögum ?

Kristinn Ásgrímsson, 5.12.2007 kl. 22:47

5 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Kiddi minn, flott þetta - við erum báðir önnum kafnir um svipað efni. Takk fyrir góð skrif.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 5.12.2007 kl. 23:15

6 identicon

Sæll kæri trúbróðir. Frábær grein og smellin spurning um hvort Hvítasunnukirkjan megi fara inní skólana á þemadögum. Vonandi verður hörku fjör hérna.  Guð blessi þig og varðveiti.  Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 23:30

7 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Já Guðsteinn ég las greinina þín og fannst hún góð .

Kristinn Ásgrímsson, 5.12.2007 kl. 23:30

8 Smámynd: Linda

Flott grein Kiddi og svo mikill sannleikur í henni. 

Linda, 6.12.2007 kl. 20:59

9 Smámynd: Sigvarður Hans Ísleifsson

Sko Hvítasunnumenn eru í skólum með starf sem heitir Ný kynslóð .. þar eru nemendurinir sjálfir með trúboð og annað... Bara í okt frelsuðust 170 nemendur í framhaldsskólum RVK á 2 vikum og

Sigvarður Hans Ísleifsson, 7.12.2007 kl. 02:25

10 identicon

Já - flott blogg hjá þér Kristinn - ég styð þetta!!

Ása (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 22:34

11 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Ég sé ekkert athugavert við að Hvítasunnukirkjan fari í skólana á þemadögum ef þeim er boðið.  


Ég veit til þess að Gunnar í Krossinum hefur farið í einhverja skóla og svo hefur Magnús Skarphéðinsson hjá Sálarrannsóknarfélagi Reykjavíkur farið og kynnt spíritisma.

Það er út í hött að líkja þessu saman við trúboð presta í leikskólum og grunnskólum. 

Matthías Ásgeirsson, 10.12.2007 kl. 09:09

12 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Kæru vinir ég þakka innlitið.

Matthías, ég myndi nú segja að ykkar vantrúar boðaskapur sé inni í kennsluefninu í flestum skólum, og þá á ég við hina einstöku þróunarkenningu. Ef ég ætti hins vegar barn á þessum aldri í dag, þá myndi ég ekki taka það úr tíma, ég myndi einfaldlega segja því einnig frá sköpun Guðs og auðvitað að það væri sannleikurinn. Því að mín sannfæring er að þróunarkenningin sé argasta vantrú og atlaga að sannleikanum.

Ég á bara svo erfitt með að skilja þína afstöðu, minn kæri, en ég er að reyna.

Kristinn Ásgrímsson, 10.12.2007 kl. 18:56

13 identicon

Brilliant að ganga í félag útfrá því sem maður er ekki.

Kannski ég gangi í félag

"ekki-framsóknarmanna" eða félag "Ekki-múslima" 

Jakob (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 22:25

14 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Matthías, ég myndi nú segja að ykkar vantrúar boðaskapur sé inni í kennsluefninu í flestum skólum, og þá á ég við hina einstöku þróunarkenningu.

Ekki ætla ég að karpa við þig um Þróunarkenninguna.  Hún tilheyrir vísindum og þekkingu og á því heima innan skólakerfisins.

 Ég á bara svo erfitt með að skilja þína afstöðu, minn kæri, en ég er að reyna.

Ég veit að þetta er erfitt fyrir þig að skilja - en þú hlýtur samt að sjá muninn á trúboði í leik- og grunnskólum annars vegar og svo fyrirlestrum á þemadögum í framhaldsskólum hinsvegar.  Þetta er ekki sambærilegt.

Jakob, þú gleymdir að telja upp Amnesty internationlan (berjast gegn mannréttindabrotum), Krabbameinsfélagið (eru ekki krabbamein!) og Hjartavernd.  Æi, þessir útúrsnúningar eru bara ekkert fyndnir að mínu hógværa mati.

Matthías Ásgeirsson, 11.12.2007 kl. 16:05

15 identicon

Engan vegin sambærilegt. Kristni er ekki glæpur eða sjúkdómur, þótt einhverjir vilja meina það. Ef þú ert Ekki trúaður, eins og ég er ekki framsóknarmaður þá er fáranlegt að mynda félag um það. En ef þú ert ekki aðeins að fjarlægja þig frá málstað eða lífssýn, heldur berjast gegn henni, þá ertu komin með sambærilegt dæmi.

Jakob (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 19:24

16 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Ef þú ert Ekki trúaður, eins og ég er ekki framsóknarmaður þá er fáranlegt að mynda félag um það.

Ef við byggjum í tómarúmi væri það hugsanlega rétt, en Vantrú berst gegn boðun hindurvitna, Vantrú er mótvægi.  Ef boðunin hverfur yrði Vantrú sjálfhætt. 

Matthías Ásgeirsson, 13.12.2007 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband