Leita í fréttum mbl.is

Guð trúarinnar.

 

 

Hebreabréfið 11.6: En án trúar er ógerlegt að þóknast honum, því að sá, sem gengur fram fyrir Guð, veður að trúa því að hann sé til og að hann umbuni þeim , er hans leita.

 

Var að lesa blogg um gull sem óx í lófa konu frá Vestmannaeyjum. Gat reyndar ekki séð að neinn neitaði þeirri staðreynd að þetta hefði gerst, en hins vegar kepptist fólk við að setja fram skoðanir sínar um Guð í þessu sambandi. Af hverju Guð léti svona ekki gerast og ef hann léti það gerast þá væri þörfin meiri í Afríku.

Þegar ég las í gegnum kommentin kom upp í huga minn tvennt:

Þegar Jesús hékk á krossinum þá hæddust margir að honum og sögðu: Bjarga nú sjálfum þér ef þú ert sonur Guðs, og stíg niður af krossinum.

Atburður í húsi Símonar: Kona kom með dýr smyrsl og hellti yfir höfuð honum.... Við þessa sjón urðu lærisveinarnir gramir og sögðu: " Til hvers þessi er þessi sóun ? Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum"   Hverju svaraði Jesús ? Fátæka hafið þér jafnan hjá yður, en mig hafið þér ekki ávallt. Síðan segir hann að hún hafi búið líkama sinn til greftrunar.

Í báðum framangreindum ritningum sjáum við að hugsun manna og Guðs fer ekki alltaf saman. Þegar Guð gerir eitthvað, virðist mönnum oft tamt að hæðast að því.

Jes. 55.8 Já mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir - segir Drottinn.

Einhver læknast, fer til læknis fær það staðfest að lækning hafi átt sér stað og fólk hæðist að viðkomandi. Merkilegt.Kona upplifir að gullduft kemur í hendur hennar, lætur rannsaka efnið og það er staðreynd að um gullefni er að ræða og fólk hlær.

Af hverju ætti Guð að gera þetta, spyr fólk ?  Góð spurning . Guð hefur alltaf farið sínar leiðir hvað sem okkur mönnum finnst. Hins vegar er mikið talað um gull í biblíunni. Það er talað um götur úr gulli og undirstöðusteina borgar úr dýrum steinum.

Einnig í tjaldbúð Guðs var ljósastika úr skíru gulli sáttmálsörk af akasíuviði gulllögð bæði utan sem innan.Gull hefur einfaldlega táknræna merkingu í biblíunni og er táknrænt fyrir Guðdóminn.

Nú biblían talar um mörg tákn og undur hafi gerst meðal fólkisins á dögum furmkirkjunnar , hvað ef Guð vill einfaldlega opinbera nærveru sína á þennan hátt, á þessum tíma myrkurs og vantrúar ?

Aftur að upphafstextanum : Sá sem gengur fram fyrir Guð verður að trúa að hann umbuni. Það er eitt að trúa á Guð og annað að trúa að Guð geri hvað sem er fyrir þig. Oftar en einu sinni  lesum við í ritningunni að Jesús læknaði og sagði: Trú þín hefur gjört þig heilann.

Jesús skyrpti eitt sinn á jörðina og gerði leðju úr hrákanum og smurði í augu blinds manns og sagði honum að fara og þvo augu sín. Kannski fór maðurinn af því að hann sá ekki hvað Jesús gerði eða hvað ?  Nú ef við lesum þá sögu áfram, þá finnum við út að farísearnir efuðust um að maðurinn hefði nokkurn tíma verið blindur.

Margir eiga erfitt með að skilja á hvaða hátt Guð hefur valið að opinbera sjálfan sig og á meðan þeir ekki sætta sig við Guðs opinberun, þá verður hann einfaldlega áfram hulinn fyrir þá.

Hvernig opinbera menn hugsanir sínar í dag ? ???????

Nokkuð oft í rituðu máli. T.d hér á blogginu. Guð sendi Jesú til jarðar og hann sagðist vera opinberun á Guði. Hann sagðist sýna okkur Guð. Ritningin segir að hann hafi verið: Orðið,sem var hjá Guði og varð hold.  Jesús sagði einnig að ritningarnar vitnuðu um hann.

Nú þú sem lest þessar línur getur að sjálfsögðu sagt að það sem ég skrifa hér sé ekki mín sannfæring, og getur gert mér upp alls konar skoðanir. Það hins vegar breytir ekki minni sannfæringu eða mínum orðum.

Eins er það með þá opinberun sem Guð hefur gefið okkur mönnum í gegnum sitt orð, Hann er trúr sínu orði.

Hann er hinn sami í gær og í dag , segir reyndar í Haggai: Mitt er gullið og silfrið.....

Ég held bara að Hann geti gert það sem hann vill við það. Ef það var til staðar í tjaldbúð Ísraelsmanna, af hverju þá ekki í kirkjunni.

Vandinn er sá að flestir virðast trúa á dauðan Guð, sem var uppi fyrir þúsundum ára, en lést fyrir aldurs sakir.

Það er ekki Guð ritningarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flower

Frábært Kiddi! Þú hefur lag á orða það sem ég er að hugsa hverju sinni.

Flower, 17.11.2007 kl. 22:42

2 identicon

Guð ritningarinnar er EILÍFUR . Og er sá hinn sami og á tímum Abrahams Ísaks og Jakobs .

Hann er líka óumbreytanlegur, og horfir því á vafasamt atferli manna með sömu augum, og á tímum ofangreindra manna . Af hverju eru menn að viðurkenna ýmsar athafnir í dag, er fordæmdar voru áður ?

Aldur Guðs, eða ritningarinnar gefur enga ástæðu til að draga úr einhver óæskileg atferli manna, og samþykkja þau og viðurkenna sem "eðlileg" .Þvílík fásinna að detta svoleiðis í hug .

conwoy (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 22:51

3 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Takk Flower fyrir þína athugasemd.

Conwoy, verð að segja að ég skil ekki alveg þína athugasemd.

Kristinn Ásgrímsson, 17.11.2007 kl. 23:15

4 identicon

var að vísa í afstöðu sumra kristinna manna til samkynhneigðar .

conwoy (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 01:01

5 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Kæri Kristinn vil segja þetta SÆLIR ERU ÞEIR, SEM HAFA EKKI SÉÐ OG TRÚA ÞÓ!

Aðalbjörn Leifsson, 18.11.2007 kl. 06:59

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góð grein hjá þér, Kristinn, mjög góð og gagnleg.

Með þakklæti og kærri kveðju,

Jón Valur Jensson, 18.11.2007 kl. 15:47

7 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Þakka ykkur innlitið bræður Aðalbjörn og Jón.

Kristinn Ásgrímsson, 18.11.2007 kl. 21:41

8 Smámynd: Linda

Ég hef ekki upplifað sem hér er á ferð, þó dreg ég ekki í efa að eitthvað er í gangi sem hrífur fólk og styrkir í trúnni,  ég þakka þér þessa færslu þína hún er hreint frábær og gefur mér svo við ýmsu sem ég hef verið að pæla í varðandi þetta mál. 

Með Guðs blessun.

Linda.

Linda, 19.11.2007 kl. 08:54

9 Smámynd: Linda

*gefur mér svör"átti þetta að vera hér fyrir ofan.

Linda, 19.11.2007 kl. 17:49

10 Smámynd: Ingvar Leví Gunnarsson

Takk kærlega fyrir þetta bróðir.

Ég var einmitt að koma af móti í Kirkjulækjarkoti, "Föðurhjarta Guðs". Það var hreint út sagt frábært mót. Guð mætti á stórkostlegann hátt, menn gátu vart staðið í lappirnar vegna nærveru Drottins. Þar var kona t.d. sem að fékk gullfyllingar í tennurnar þar sem áður fyrr höfðu verið venjulega tannfyllingar. Gunni glytraði allur á höndunum og sá ég það með mínum eigin augum, fólk var að tína úr sér heyrnatækin þar sem fólk var farið að heyra alltof mikið með þeim! Fólk var að læknast á hinn ótrúlegasta máta, ólýsanlegt!

Þetta reyndi mjög mikið á trú mína, maður var búinn að heyra fólk sega að þetta væri bara múgæsingur og læti, en ég hef bara komist að því að fólk sem segir það er það fólk sem ekki hefur upplifað svona sjálft. Guð snerti við mér ótrúlega og breytti viðhorfum mínum til þessara mála.

Og þessi færsla þín gefur mér frábæra staðfestu fyrir því að Guð er góður og hann er að úthella anda sínum yfir allt hold á Íslandi!

Ingvar Leví Gunnarsson, 19.11.2007 kl. 21:26

11 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Þakka þér Linda og þér Ingvar fyrir að koma með fréttir beint af staðnum. Mig langar bara að ítreka Jesaja 51.3 : Já Drottinn huggar Síon, huggar allar rústir hennar. Hann gjörir auðn hennar sem Eden og heiði hennar sem aldingarð Drottins. Fögnuður og gleði mun finnast í henni, þakkargjörð og lofsöngur.

Kristinn Ásgrímsson, 19.11.2007 kl. 23:05

12 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Já það er gott að nú eru menn farnir að trúa sem ekki trúðu. Þetta eru ekki hinir lærðustu og mestu sem vitna um þetta. Minnir mig á að Kristur birtist fyrst konunum eftir að hann reis upp, en hver vildi trúa þeim þær voru ekki hátt skrifaðar. Ég hef ekki séð svona gerast en trúi. Sælir eru þeir sem hafa ekki séð en trúa þó.

Aðalbjörn Leifsson, 20.11.2007 kl. 05:41

13 Smámynd: Ingvar Leví Gunnarsson

Já Aðalbjörn það er alveg rétt hjá þér, ef við lesum bara...

Lúkas 10:21, Á sömu stundu varð hann glaður í heilögum anda og sagði: "Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum, en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.

Hérna sjáum við nákvæmlega hvernig þetta er sett fram í Biblíunni.

Amen.

Ingvar Leví Gunnarsson, 20.11.2007 kl. 10:11

14 Smámynd: Linda

Vá Ingvar þakka þér fyrir frásögn þína sem er frekari vitnisburður um það sem er að ske.  Stundum er fólk svo hrætt við andans gjafir að það trúir því að hið illa sé á ferð, ég bara neita að falla í þá gryfju, ég vona að ég fái að upplifa þetta, og ég sé hræðilega eftir því að hafa ekki farið á kotið eins og ég hafði hugsað mér, en margt kom í veg fyrir það, m.a.  ótti, mun ekki leyfa slíku að hrjá mig framar.  Þúsund þakkir.

Linda, 20.11.2007 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband