Leita í fréttum mbl.is

I love Afrika

 

 

 

Lögðum upp að morgni 5 okt til Nakuru Kenya. Þurftum að bíða 6 klst í London, flugum síðan til Narobi þar sem við lentum kl 06.00 að morgni. Með mér í för var Sölvi Hilmarsson vinur minn og trúbróðir. Tilgangur farar okkar var tvíþættur,  fyrst heimstóttum við biblíuskóla þar sem ég kenndi í eina viku og Sölvi vann við smíðar. Á skólanum voru 29 nemendur flestir forstöðumenn og leiðtogar. Síðan heimsóttum við einnig  hjálparstarf sem kallast " New Life Africa International " sem er hjálparstarf fyrir götubörn. Heimilið hýsir nú um 90 börn og hefur skóla fyrir 500 börn, sem annars hefðu ekki efni á skólagöngu. Þessi börn fá einnig máltíð í skólanum, sem fyrir mörg þeirra er jafnevel þeirra eina máltið. Einnig er rekin neyðarmóttaka fyrir einstæðar mæður á tveim stöðum í borginni og er full þörf þar á .

Hvítasunnukirkjan í Keflavík hefur styrkt þetta starf og er áætlað að kynna það betur í byrjun næsta árs, en þá munu Leif og Susanne Madsen sem eru brautryðjendur þessa starfs sækja okkur heim.

 

Nú við lentum sem fyrr segir snemma morguns í Nairobi, þar sem Paul Tocco bandaríkjamaður og skólastjóri biblíuskólans tók á móti okkur. Hann og fjölskylda hans hafa dvalið 14 ár í Kenya og stofnuðu þennan skóla í trú.  Borgin var að vakna til lífsins og vakti það athygli okkar hve margir voru á gangi meðfram þjóðveginum. Paul uppfræddi okkur um það að fætur væru algengasta farartækið þarna.  Nú við lögðum síðan að stað áleiðis til Nakuru og í fyrstu var vegurinn svona álíka og verstu kaflarnir á leið til Akueyrar . En eftir um 100 km akstur þá lauk malbikaða kaflanum og nú tóku við vegaskorningar sem ég man varla eftir á Íslandi. En afríkubúar aka samt á fullu þótt farartækin fari í loftköstum.

 

Nú við dvöldum síðan á skólanum í viku og dvöl okkar lauk þar með heimsókn í "Slummið" eða fátækrahverfið við öskuhaugana. Eftir þá upplifun, þá verð ég að segja að fátækt og fátækt er kannski ekki sami hluturinn. Þá á ég við það sem kallast fátækt á Íslandi og fátækt á öskuhaugum Nakuru, nú eða bara götubörnin í Nakuru.

Nakuru telur um 1 milljón íbúa og þar eru um 3000 götubörn, sem er mjög átakanlegt að sjá. Okkur er tjáð að stjórnvöld loki augunum fyrir þessum vanda, en sem betur fer eru mörg hjálparsamtök að vinna gott starf þarna. Ekki endilega þessi stóru samtök, heldur hittum við þarna nokkra einstaklinga eins og Susanne og Leif, sem hafa bara farið og byrjað að hjálpa. Götubörninn sniffa lím til að deyfa hungrið.

Mánaðlaun verkafólks eru um $ 40 og það nægir varla fyrir mat.

Eins og fyrr segir þá eyddum við 3 síðustu dögunum með Leif og Susanne og skoðuðum barna og hjálparstarfið. Það er kraftaverk hvað þessi hjón hafa áorkað á síðustu 13 árum. Við hittum einnig nokkra af þeirra fyrstu götudrengjum, sem nú voru orðnir fulltíða menn og komnir út í atvinnulífið.

Hlýddum á frásögn fyrrverandi vændiskonu, sem var þakklát fyrir þetta starf og það nýja líf sem hún hafði eignast og gaf hún Guði dýrðina fyrir það.

Við héldum síðan heim á leið mánudaginn 15 okt til Narobi til að ná flugi til London morguninn eftir. Þetta kvöld fórum við út að borða með gestgjöfum okkar og á leið heim á gistiheimilið fengum við að kynnast lögreglunni í Narobi. Ökumaður okkar var stöðvaður og hafði hann gleymt að setja á sig öryggisbelti. Okkur var tjáð að hann þyrfti að mæta hjá dómara daginn eftir. Einnig var honum tjáð að það væru 70 á undan honum í röðinni, þannig að hann gæti þurft að bíða í dómshúsinu í 2-3 daga. Er ekki hægt að borga sektina á staðnum. Því miður, höfum ekki kvittanaheftið var svarið. Eftir mikið þref þá endaði þetta mál með því að ökumaður okkar greiddi yfirmanninum þarna á götunni jafnvirði 500 kr íslenskar . Ekki mútur sagði lögreglan, heldur þakklætisvottur fyrir góða meðferð.

Morguninn eftir héldum við svo heim á leið með Virgin Atlantic til London þakklátir fyrir landið okkar Ísland, en samt með ákveðnum trega, því þarna er mikið verk að vinna.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Takk Kristinn fyrir að segja okkur frá Afríku ferðinni og að vera fulltrúi okkar þarna. Sælir eru miskunnsamir því að þeim mun miskunnað verða. Guð blessi þig.

Aðalbjörn Leifsson, 20.10.2007 kl. 22:59

2 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Velkominn heim Kristinn Frábært að sjá frá ferðinni, þetta kallar maður sko sanna ávexti í Guðsríkinu þegar að fólk fer að boða Það væri kannski sniðugt hjá þér að birta reikningsnúmer á síðunni sem er fyrir þetta starf sem að kirkjan ykkar í Keflavík er að styðja. Guð blessi ykkur öll

Guðrún Sæmundsdóttir, 21.10.2007 kl. 22:56

3 Smámynd: Þormar Helgi Ingimarsson

Sæll Kiddi minn. Þetta var frábær grein. Ég er ánægður með þessa ferð. Hvernig GUÐ er að leiða þig og okkur í Kirkjuni. Eg trúi því að þú átt eftir að fara aftur til Afríku. Ég trúi því líka að kirkjan okkar á eftir að taka þátt í uppbyggingu á stáka heimili eins og stúlkna heimið. Takk fyrir að leifa mér að taka þátt í þessu og eiga hlutdeild í þessu starfi.  Kiddi Guð blessi þig.

Þormar Helgi Ingimarsson, 22.10.2007 kl. 12:04

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Vá, þetta hefur verið þörf farð og gott finnst mér að vekja umræðu um þetta. Sérstaklega í velmegnunar samfélagi eins og Íslandi. Við af öllum ættum að geta gefið til þessara starfa, og tek ég undir hugmynd Guðrúnar að birta reikningsnúmer til þess að leggja þessu málefni lið. Takk fyrir góða grein Kiddi minn.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 22.10.2007 kl. 14:35

5 identicon

Sæll bróðir.

Þetta var dásamleg lesning og myndbandið segir meir en nokkur orð fögnuður og gleði í Heilögum anda sem er svo heillandi. Guð er að vinna mjög merkilegt starf í Afríku og þar er mikil trúarvakning. Guð blessi ykkur og hjálparstarfið.

Helena ,Aglow í Garðabæ (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 16:57

6 Smámynd: Helena Leifsdóttir

Sæll bróðir.

Þetta var dásamleg lesning og myndbandið segir meir en nokkur orð fögnuður og gleði í Heilögum anda sem er svo heillandi. Guð er að vinna mjög merkilegt starf í Afríku og þar er mikil trúarvakning. Guð blessi ykkur og hjálparstarfið.

Helena Leifsdóttir, 28.10.2007 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband