Leita í fréttum mbl.is

„Ekki rugla mig með staðreyndum. Ég hef myndað mér skoðun.“

Vona mér verði fyrirgefið en ég stenst ekki mátið að blanda mér í þessa umræðu þótt seint sé. Fyrirsögnin er tilvitnun í pistil af bloggsíðu, Arndísar Önnu, Kristínar og Gunnarsdóttur. Og ég leyfi mér að grípa inn í umræðuna hér:  

Síðbúið svar til Arndísar.

Þar sem búið var að loka á þessa færslu langar mig að birta hér svar til Arndísar Kristínar Gunnarsdóttur og svara þeim spurningum sem eru hér teknar af hennar bloggsíðu, þar eð engin svör komu.

Arndís segir:

Ég hef sjálf fundið Guð og hann var góður félagi minn í mörg ár. Með tímanum hvarf hinsvegar trúin, en það var alls ekkert sorgarferli sem þeim „missi" fylgdi. Ég einfaldlega áttaði mig á því, sem Richard nokkur Dawkins orðaði svo skemmtilega:

„We don't need an imaginary friend in the skies."

Mín spurning út frá pistli Stefáns er því þessi: Hvers vegna ætti ég að leita Guðs „af öllu hjarta"? Hvers vegna ætti ég að opna huga minn fyrir boðskap trúarbragða (heilaþvotti?)? Hvers vegna, þegar ég hef sjálfa mig, náttúruna, skynsemina, rökhugsunina, trúna á hið góða, fjölskylduna mína og annað gott og fallegt sem lífið hefur upp á að bjóða, til þess að veita mér sáluhjálp, hamingju, sátt, eða hvað það er sem fólk sækist eftir í lífinu? Mig skortir ekkert.

 

Ef þú hefðir raunverulega fundið Guð, þá hefði Richard nokkur Dawkins  ekki getað heilaþvegið þig með sínu röklausa vantrúarrugli. Ég hlustaði á þennan Richard Dawkins í Kastljósi og það eina sem gerðist var að ég varð enn vissari í minni sök að Drottinn minn og Guð minn væri skaparinn. Sjáðu Dawkins gerir nákvæmlega það sem ritningin segir fyrir um .

Hann dýrkar hið skapaða í stað skaparans.

Hann sagði orðrétt: 500 milljón ára jörð fyllir mann dulúð og lotningu.  Hvað er maðurinn að segja ? Jú að jörðin hið skapaða og aldur hennar það hrífur hans hjarta.

Dawkins heldur áfram og segir: Trúin er spennandi fyrir treggáfað fólk.

Hver er nú að ímynda sér hvað ? Jörðin 500 milljón ára ? Það er enginn sem getur sannað það.

Jörðin varð til að sjálfu sér ? Hver er nú trúaður ? Eða ímyndunarveikur ?

Hvað er það fyrsta sem okkur dettur í hug þegar við horfum á málverk ? Hver málaði þessa mynd. Eða hver teiknaði þetta hús ? Þú þarft á virkilegri ímyndunarveiki að halda til þess að trúa því að húsið hafi orðið til af sjálfu sér.

Mitt mat er að skoðanir Dawkins séu algerlega röklausar,  eins og segir í sálminum : "Heimskinginn segir enginn Guð."

Arndís spyr:

"Hvers vegna ætti ég að leita Guðs „af öllu hjarta"? Hvers vegna ætti ég að opna huga minn fyrir boðskap trúarbragða (heilaþvotti?)? Hvers vegna, þegar ég hef sjálfa mig, náttúruna, skynsemina, rökhugsunina, trúna á hið góða, fjölskylduna mína og annað gott og fallegt sem lífið hefur upp á að bjóða, til þess að veita mér sáluhjálp, hamingju, sátt, eða hvað það er sem fólk sækist eftir í lífinu? Mig skortir ekkert."

Af því að þú ert sköpuð í Guðs mynd til að eiga samfélag við Hann. Það er hinn raunverulegi og upphaflegi tilgangur lífsins.

Þú sjálf , náttúran , hugsanir þínar, fjölskyldan ..... getur ekki veitt þér sáluhjálp...Þú getur svo sem sagt mig skortir ekkert, en það er bara eitthvað sem getur breytst á einu augnabliki. Við getum búið við allsnægtir í dag og skort á morgun.

Þú hefur hins vegar val að trúa mönnum eins og Richard Dawkins eða þeirri opinberun sem Guð hefur gefið okkur í Orði sínu, í Jesú Kristi og í allri sköpuninni sem þú minnist á.

Það er það frelsi sem við höfum, sem sköpun Guðs, við höfum frjálsan vilja. Við getum enn valið af hvoru trénu við viljum eta. Okkar eigin skilnigs tré eða  lífsins tré.......

 

Enn ein ásæða til að leita Guðs er þessi. Við erum eilífðar verur það er líf eftir þetta líf og markmið fagnaðrerindis Jesú Krists er að vekja okkur synduga menn til iðrunar að við sættumst við Guð og séum síðan með Honum um alla eilífð.

Þetta eru staðreyndir sem ég vil gjarnan miðla með þér, en ekki rugla þig heldur sannfæra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marvin Lee Dupree

Keflavík er víða.

Marvin Lee Dupree, 16.5.2007 kl. 14:25

2 Smámynd: halkatla

ég verð að viðurkenna að ég hafði gaman af Richard Dawkins í kastljósinu, hann er mælskur. En það er leiðinlegt að hann sé ekki trúaður, og ég tek alveg undir það sem þú segir um hann í greininni. Hann minnir mig á ritningarstað; það koma spottarar, menn sem ekki hafa andann.... þetta er einhvernvegin svona, en amk er hann einn af þeim.  Svo er það fólkið sem velur sér kennara eftir því sem kitlar eyrun. Það er erfitt að geta ekki bara tekið um fólk, hrist það aðeins til og sagt; "sjáðu, heyrðu og trúðu" en því miður vilja svo margir ekki heyra um það GÓÐA! Að mínu viti byrjaði lífið ekki almennilega fyrren ég fór að lesa Biblíuna í andanum og eignaðist náið samband við Drottinn. Það er ómetanlegt og gefur manni mikinn skilning sem kemur ekki til manns þó að maður rannsaki og horfi á sköpunarverkið. Sem er samt alveg undursamlegt.

halkatla, 19.5.2007 kl. 13:50

3 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Þakk þér fyrir þetta innlegg Anna Karen, já það er einmitt þetta Kristindómurinn er samfélag við Guð og þetta samfélag gjörbreytti mínu lífi og byggir ekki bara á tilfinngu heldur trausti, við höfum upplifað og reynt.

Kristinn Ásgrímsson, 19.5.2007 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 42888

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband