Leita í fréttum mbl.is

Ömurleg jólakveðja ríkisútvarpsins

 Var að horfa á ríkissjónvarpið senda landsmönnum jólakveðju sína sem hófst á íslensku blótsyrði, og síðan amerísku klám blótsyrði. Ég hélt nú að það væri bannað með lögum að blóta í fjölmiðli. En kannski er þetta sú menning sem koma skal.

Athyglisvert í ljósi þess, að ákveðin kirkja var beðin um að taka Guðs orðið út úr messu sinni og flytja aðeins söng. En dónaskapur og sori, það þykir menning. Jú, það er víst komið 2009 eða hvað ? Ég frábið mér jólakveðju ríkisútvarpsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óttar Felix Hauksson

Hvaða blótsyrði íslensk og amerísk ertu að tala um? Þetta eru alvarlegar ásakanir í garð Ríkisútvarps allra landsmanna. Einnig væri fróðlegt að fá að vita hvað kirkja var beðin að fjarlgja Guðsorð úr messu og hver fór fram á það við prestinn? Það er ekki rétt af þér Kristinn að tala um grafalvarleg mál sem þessi  í hálfkveðnum vísum. Svona mál má ekki hafa í flimtingum.

Óttar Felix Hauksson, 20.12.2009 kl. 22:34

2 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Sæll Óttar.

Ég hvorki blóta eða hef þetta eftir. En þetta er kynning á dagskrá á myndefni með Jón Gnarr. Reyndar eru kynntir nokkri þættir sem enda síðan með jólakveðju til landsmanna. Hitt var Hvítasunnukirkjan í Reykjavík og það var dagskrársjóri sem fór fram á að ekki yrði predkikun.

Kristinn Ásgrímsson, 21.12.2009 kl. 16:13

3 Smámynd: Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir

Ég sendi ykkur hjónunum hér með yndislegar jólakveðjur, megi Guð blessa ykkur ríkulega á árinu, þið eruð yndisleg blessun,

jólaknús Fjölskyldan á Súlutjörn

Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir, 23.12.2009 kl. 06:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 42894

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband