Leita í fréttum mbl.is

Að höndla sannleikann.

 

Að höndla sannleikan.

Það vakti furðu mína fyrir nokkru að fríkirkjupresturinn Hjörtur Magni, taldi hættulegt fyrir okkur að höndla sannleikann. Sannleikurinn á að höndla okkur sagði hann. En hvernig getur sannleikurinn höndlað mig ef ég höndla ekki hann ?  M.ö.o. Getur sannleikurinn höndlað líf mitt ef ég ekki þekki hann og hann er mér fjarlægur. Jesú sagði : "Verið í mér og þá verð ég í yður."

Kristin trú byggir á því að einstaklingurinn höndli sannleikann. Sérhver sá sem trúir á Krist sem frelsara, er sannfærður um að hafa höndlað sannleikann.

Hættulegt að höndla sannleikan ? Mér var sem barni kennt að varast lygina. En kannski er það úrelt viðhorf.

Er hægt að höndla sannleikann ?  Kannski er það hægt fyrir okkur sem ekki erum guðfræðingar. Ég er t.d. sannfærður um að 2+2= 4  óháð tíma , tilfinningum, tíðaranda eða hneigð. Ég er líka sannfærður um að sólin er á sínum stað hvort sem ég sé hana eður ei.

Ég á erfitt með að skilja þetta með að sannleikurinn sé eitthvað grátt sem breytist við tilfinningu, tíma , tísku, girndir, eða hneigðir.

Jesús sagði reyndar að þeir sem þekktu sannleikann yrðu frjálsir. Ef að þekkja og höndla er sami hluturinn þá eru ekki allir frjálsir. A.mk. ekki þeir sem ekki vilja höndla.

Merkilegt sem Páll segir um sannleikann í Róm 1.22-25: Þeir kváðust vera vitrir,  en urðu heimskingjar......þeir hafa skipt á sannleika Guðs og lyginni.......

Jes.59.14. Og rétturinn er hrakinn á hæl, og réttlætið stendur langt burtu, því að sannleikurinn hrasaði á strætunum og hreinskilnin kemst ekki að. Sannleikurinn er horfinn og sá sem firrist það sem illt er, það er skjótt ráðist á hann. (Living bible)

Þegar ég les þessi vers finnst mér þau eiga vel við okkar tíma. Þegar guðfræðingar hvetja til brotthvarfs frá sannleikanum eins og við sjáum nú 40 presta leggja til, þá er illa komið fyrir íslenskri kirkju.

Biblían segir að Guðs hús sé stólpi sannleikans. Ef nú stólpanum er kippt í burtu þá hrynur byggingin.

Þess vegna skiptir það máli að við höndlum og förum rétt með orð sannleikans.

 

 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda

Takk fyrir þessa grein,enda þörf á henni.  Það er sorglegt hvernig er komið fyrir krikjunni, og kannski eins og þú sagðir hjá Jón val er bara kominn tími til þess að aðskilja hana. Verður hún ekki sterkkari fyrir vikið, að geta boðað orð Guðs, vitnisburðinn um Jesú án þess að einhverjir hagsmuna aðilar reyna að koma þar að. 

Ég bið þér blessunnar og friðar í nafni okkar elskaða Jesú Krists.

Linda, 25.4.2007 kl. 01:55

2 Smámynd: Högni Hilmisson

Frábært hjá þér Kristinn Ásgrímsson. Heimska mannana verður æ augljósari okkur öllum , nema þeim sem heimskuna stunda. eða hvað skal segja. það kanski ískrar í fornum gröfum á húsavík, þegar myrkravöldin halda svona party. Guð veri okkur miskunsamur.

Högni Hilmisson, 25.4.2007 kl. 03:06

3 Smámynd: Púkinn

Það skrýtna er að Púkinn er alveg sammála því að "sannleikurin muni gera yður frjálsa".  Púkinn er bara ekki tilbúinn til að samþykkja einhverjar árþúsunda gamlar sögur sem "sannleik".  Nei, þá vill Púkinn frekar biðja um þann sannleik sem finnst í náttúrunni og vísindin hafa leitt í ljós.  Í þeim sannleik er ekkert rúm fyrir sögur biblíunnar.

Púkinn, 26.4.2007 kl. 17:33

4 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Þar fer púkinn sannarlega villur vegar því að: Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngerir verkin handa hans.

Því að hið ósýnilega eðli Hans ...er sýnilegt frá sköpun heimsins, með því að það verður skilið af verkum Hans. Guð er skapari og maðurinn er skapaður í Hans mynd, þess vegna er sköpunargáfan í eðli mannsins og vísindin eru gjöf Guðs.

Kristinn Ásgrímsson, 26.4.2007 kl. 18:46

5 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Mér finnst að Hjörtur Magni eigi að fá sér aðra vinnu, og þá við eitthvað sem að ekki felur í sér ábyrgð á sáluhjálp annara. Hvernig getur maður sem ekki þekkir sannleikann verið prestur? Hann er svosem ekkert einn um það að starfa sem prestur og þekkja ekki sannleikann, því miður, en sem betur fer eru þeir sem þekkja Jesú fleiri.

Guðrún Sæmundsdóttir, 29.4.2007 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Ásgrímsson
Kristinn Ásgrímsson
Safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík. Nafnlausar athugasemdir eru ekki leyfðar á þessum vef og verða fjarlægðar, sem og dónalegar athugasemdir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband